fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fókus

Angelina Jolie og The Weeknd vekja athygli á stefnumóti saman

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 2. júlí 2021 08:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta er vissulega ekki stjörnuparið sem við bjuggumst við en tökum samt sem áður fagnandi.

Leikkonan Angelina Jolie og tónlistarmaðurinn The Weeknd, sem heitir réttu nafni Abel Makkonen Tesfaye, sáust snæða kvöldverð saman á ítalska veitingastaðnum Giorgio Baldi í Kaliforníu. The Sun greinir frá og birtir myndir.

Samkvæmt heimildum The Sun varði parið nokkrum klukkustundum saman inni á staðnum en fóru í sitthvoru lagi til að forðast að vekja grunsemdir.

Angelina Jolie, 46 ára, klæddist ljósbrúnum frakka, svörtum bol og ljósbleikum hælum á meinta stefnumótinu. The Weeknd, 31 árs, var í dökkum gallabuxum og gallajakka, í svörtum stuttermabol og svörtum stígvélum.

Angelina var áður gift Brad Pitt og hafa þau verið að standa í forsjárdeilum undanfarin fimm ár. Þau eiga saman sex börn.

The Weeknd var í sambandi með ofurfyrirsætunni Bellu Hadid á árunum 2015-2016 og aftur frá 2018-2019. Hann var einnig í sambandi með Selenu Gomez árið 2017.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala