fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Íslenska fjallkonan í gegnum árin – Þessar brutu blað í sögunni

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 18. júní 2020 11:30

Fjallkonan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir tengja fjallkonuna við ljóðalestur ungra leikkvenna í sérstökum búning á 17. júní við morgunathöfnina, sem er fastur liður hátíðahaldanna. Það er vitnað til fjallkonunnar sem persónugerving landsins og kemur fjallkonan víða fram í ljóðum.  Orðið Fjallkona þykir bera með sér sterkan blæ dugnaðar, drauma og myndugleika. Á síðasta ári opnaði veitingahús við Ingólfstorg sem einmitt ber nafnið Fjallkonan en auglýsingaherferð staðarins byggði á myndum af sterkum íslenskum konum svo ljóst er að orðið fjallkona er rótgróið og virt og þykir það mikill heiður að hljóta það hlutverk.

Fyrsta þekkta notkun orðsins fjallkona er í kvæði Bjarna Thorarensen (1786–1841) 

Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
Fjallkonan fríð!
mögum þín muntu kær
meðan lönd gyrðir sær
og guma girnist mær,
gljár sól á hlíð.[4]

„Á hinum fyrstu árum þótti þetta ekki akkúrat það sem ungar leikkonur vildu vera að stússast í. Og þá neituðu þær margar. Nú þykir þetta heiður,“ segir Gísli Árni Eggertsson, æskulýðsfulltrúi og aðstoðarframkvæmdastjóri ÍTR, í samtali við Fréttablaðið árið 2003.

Í gegnum árin hafa nokkrar fjallkonur brotið blað í sögunni, eins og Eva Ágústa sem var fyrsta transkonan til að vera fjallkona og Aldís Amah til að vera fyrsta svarta konan til að vera fjallkona Reykjavíkur.

Fjallkonur sem brutu blað í sögunni

Árið 2004 var Sheba Ojienda klædd fjallkonubúning framan á forsíðu The Reykjavík Grapevine. Ritstjóri á þeim tíma kvartaði yfir hversu erfitt það hafi verið að fá fólk til að lána sér fjallkonubúning þegar það vissi hver myndi klæðast honum.

Undanfarinn sólarhring hefur myndin farið í dreifingu á Facebook og hefur til að mynda varaborgarfulltrúi Viðreisnar, Diljá Ámundadóttir Zoëga deilt myndinni.

Aldís Amah

Aldís Amah. Mynd: Facebook

Leikkonan Aldís Amah Hamilton var fyrsta konan með blandaðan bakgrunn og rætur að rekja til svartra til að vera fjallkona Reykjavíkur en sveitafélög víðsvegar um landið höfðu þegar fagnað fjölbreytileikanum árum áður. Brynja Muditha Dan Gunnarsdóttir var fjallkona Hafnarfjarðar árið 2002 og Isabel Alejandra Días var fjallkona Ísafjarðarbæjar árið 2016.

Skjáskot/Tímarit.is

Aldís Amah deildi mynd á Facebook í gær og minntist dagsins.

„Ótrúlegt að það sé ár liðið frá þessum dásamlega degi, einum gleðilegasta í mínu lífi. Það hefur svo margt gerst á þessum 365 dögum síðan sem hefur, því miður, ekki verið eins gleðilegt og þrátt fyrir ótæmandi þakklæti er, satt best skal segja, mikil sorg í mínu hjarta þessa dagana,“ segir Aldís.

Fyrsta transkonan

Eva Ágústa.

Eva Ágústa Aradóttir er fyrsta transkonan til að vera fjallkona. Hún var fjallkona Hafnarfjarðar árið 2017.

Fyrsta dragdrottningin

Gógó Starr

Dragdrottningin Gógó Starr var fjallkona árið 2018. Sigurður Heimir Guðjónsson, annað sjálf Gógó, sagði í samtali við Gay Iceland á sínum tíma að þetta væri merki um að þjóðfélagið væri að verða sífellt opnara fyrir dragsenunni og hinsegin menningu.

Ljóð á táknmáli

Elsa og Tinna. Mynd: timarit.is

Árið 2006 voru tvær fjallkonur, Elsa G. Björnsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir. Þær fluttu ljóðið Einu-sinni-var-landið eftir Steinunni Sigurðardóttur, Tinna á talmáli en Elsa á táknmáli.

Við tókum saman fleiri íslenskar fjallkonur í gegnum árin.

Sigrún Edda

Mynd: 17juni.is

Sigrún Edda Björnsdóttir, leikkona, var fjallkonan árið 2018.

Þóra Einarsdóttir

Söngkonan Þóra Einarsdóttir var fjallkonan árið 2017. Hún rifjaði það upp á Facebook í gær.

Selma Björnsdóttir

Mynd: Pinterest

Selma Björnsdóttir var fjallkonan árið 2013. Mynd: Pinterest

Inga María

Inga María.

Inga María Valdimarsdóttir, leikkona, var fjallkonan árið 2003.

Edda Björgvinsdóttir

Fjallkonan í ár var Edda Björgvinsdóttir leikkona.

Steinunn Ólína

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir var fjallkonan árið 1994. Anna Jóna Snorradóttir birti mynd af Steinunni árið 1994 á Facebook í gær.

Kristín Pétursdóttir

Leikkonan Kristín Pétursdóttir var fjallkona árið 2013. Hún rifjaði upp daginn á Instagram í gær.

Skjáskot/Instagram

Helga Braga

Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir var fjallkona Akraness þegar hún var sautján ára og seinna meir fjallkona Reykjavíkur árið 1998.

https://www.instagram.com/p/CBi_pg7AHOg/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“