fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Sakamál: Líkið fyrir utan dyrnar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 1. ágúst 2020 20:00

Stephen Port var sérkennilegur maður sem tók barnaleikföng með sér í partí. SKJÁSKOT/YOUTUBE

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 19. júní árið 2014 barst símtal í neyðarlínuna frá Barking-hverfinu í austurhluta London. Íbúi tilkynnti um mann sem lægi á stéttinni fyrir utan útidyrnar hjá honum og virtist vera meðvitundarlaus. Er lögregla og sjúkralið komu á vettvang reyndist maðurinn vera látinn. Þetta var 23 ára gamall maður, Anthony Walgate að nafni, hann var frá Hull en hafði komið til London til að læra tískuhönnun. Fyrir utan námið stundaði Anthony vændi af og til.

Við krufningu kom í ljós að banamein hans hafði verið ofskammtur af lyfinu GHB – eða smjörsýru. Þrátt fyrir að þetta sé frægt nauðgunarlyf taldi lögregla í fyrstu að ekki væri um saknæmt athæfi að ræða og var talið að Anthony hefði einfaldlega látist af of stórum skammti. Smjörsýra getur valdið öndunarstoppi og þannig leitt til dauða.

Íbúinn sem tilkynnti um atvikið heitir Stephen Port, fæddur árið 1975. Hann tjáði lögreglu í yfirheyrslu að hann þekkti manninn ekki neitt, hefði aldrei séð hann. Við eftirgrennslan kom þó í ljós að mennirnir höfðu kynnst á stefnumótasíðu. Er lögreglan hermdi þetta upp á Stephen játaði hann að maðurinn hefði verið í íbúðinni hjá honum, hann hefði tekið inn fíkniefni og orðið mjög veikur. Stephen hefði sofnað, síðan farið í vinnuna um morguninn, en þegar hann kom heim aftur hefði hann fundið manninn látinn í íbúðinni. Hann segist hafa orðið ofsahræddur við þetta, farið á taugum, og fært lík mannsins út fyrir húsdyrnar.

Stephen var ákærður fyrir að hindra réttvísina, vegna þess að hann greindi ekki rétt frá málavöxtum í fyrstu. Lögreglan tók hins vegar skýringar hans góðar og gildar og dauði Anthony Walgate var ekki rannsakaður sem sakamál.

Anthony Walgate fannst látinn fyrir utan dyrnar. SKJÁSKOT/YOUTUBE

Þrjú dauðsföll til viðbótar

Á næstu vikum og mánuðum, eða fram í september, fundust þrjú lík af ungum mönnum í kirkjugarði örskammt frá heimili Stephen Port. Þetta voru þeir Gabriel Kovari, 22 ára, sem var frá Slóvakíu, en hafði flutt þaðan til London; Daniel Whitworth, 21 árs gamall maður frá Kent, og Jack Taylor, 25 ára maður sem bjó með foreldrum sínum í Dagenham, öðru hverfi í austurhluta London.

Við krufningu fannst í líkama allra þessara manna mikið magn af smjörsýru. Lögreglan ályktaði að þeir hefðu allir látist fyrir slysni af of stórum skammti af fíkniefninu. Vinnubrögð lögreglunnar vöktu gagnrýni í hinsegin samfélaginu í London og látið var að því liggja að samkynhneigð mannanna og lífsstíll þeirra réði einhverju um áhugaleysi lögreglunnar.

Á líki Daniel Whitworth fannst sjálfsmorðsbréf sem virtist gefa til kynna að hann gæti verið morðingi hinna tveggja. Er lögreglan bar bréfið undir föður og stjúpmóður Daniels voru þau spurð hvort þetta gæti verið rithöndin hans. Foreldrarnir sögðust ekki geta útilokað að þetta væri hans rithönd, en innihald bréfsins væri óhugsandi. En lögreglan tók því sem svo að hann hefði skrifað bréfið. Hún gerði heldur ekkert með þá niðurstöðu réttarmeinafræðings að mar á líkama Daniels gæti verið af manna völdum.

Við þrábeiðnir og ákafa hvatningu úr hinsegin samfélaginu, fór lögreglan að gefa meiri gaum að Stephen Port og rannsakaði nú loksins tölvu hans, sem hafði verið í vörslu lögreglunnar frá láti Anthony Walgate. Kom þá í ljós að hann hafði átt í kynnum við alla þessa þrjá menn á netinu. Hann hafði einnig verið að skoða vafasamt efni á netinu, til dæmis um eiturbyrlun.

Eftir þetta komst skriður á rannsóknina og eftir nokkrar stífar yfirheyrslur játaði Stephen loks að hafa myrt mennina. Hann reyndist í senn vera raðnauðgari og raðmorðingi. Hann hafði byrlað öllum mönnunum risaskammti af smjörsýru og nauðgað þeim er þeir voru meðvitundarlausir. Þeir létust síðan af ofskammtinum.

Hver er Stephen Port?

Sem fyrr segir er Stephen fæddur árið 1975 og var því 39 ára er hann framdi þessa glæpi. Hann fæddist í Southend en ólst upp í austurhluta London. Stephen var einfari í æsku og lenti í einelti í skóla. Hann tamdi sér ýmsa barnalega siði á fullorðinsárum, t.d. lék hann sér að barnaleikföngum og mætti jafnvel með leikfangabíla í partí eftir að hann var kominn yfir tvítugt. Stephen kom út úr skápnum sem samkynhneigður maður skömmu eftir tvítugt. Þegar þessir atburðir áttu sér stað starfaði hann sem kokkur á matstað á stórri strætisvagnabiðstöð.

Glæpir Stephens Port þóttu svo skelfilegir að hann var dæmdur í ævilangt fangelsi, án nokkurs möguleika á náðun. Dómurinn kveður á um að hinn sakfelldi skuli sitja í fangelsi alla ævi bókstaflega.

Lögregla hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir kæruleysi og áhugaskort. Ef dauði Anthony Walgate hefði verið rannsakaður almennilega, hefði mátt koma í veg fyrir dauða hinna þriggja, segja gagnrýnendur lögreglunnar.

BBC hefur nú látið gera leikna þáttaröð um Stephen Port og glæpi hans og ber hún heitið The Barking Murders.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“