fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fókus

Áfengisvandamál Þorgeirs: Gleymdi að sækja barnið sitt úr pössun

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 11. júní 2020 17:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áfengið lék hinn fræga útvarpsmann, tónlistarmann og skemmtikraft Þorgeir Ástvaldsson grátt á árum áður. Þorgeir, sem fagnaði sjötugsafmæli fyrir skömmu, er í viðtali í þætti Sigumundar Ernis Rúnarssonar, Mannamáli, á Hringbraut í kvöld, en þar greinir hann meðal annars frá því er hann gleymdi að sækja barnungan son sinn úr pössun.

Þá segir frá því er Þorgeir mætti til vinnu sinnar á útvarpsstöðinni Stjörnunni snemma morguns eftir mikinn gleðskap, þar sem hann ætlaði að taka viðtal við Svavar Gestsson, þáverandi ráðherra. Ráðherrann sat á biðstofunni og fletti dagblaði en útvarpsmaðurinn gleymdi þessum viðmælanda sínum og lauk við þáttinn án þess að ræða við hann!

Drykkjan varð Þorgeiri fjötur um fót og sagði hann skilið við áfengið.

Í spjallinu við Sigmund Erni segir Þorgeir ennfremur frá samstarfinu í hinni víðfrægu Sumargleði, hljómsveitarstússinu með Tempó, vinskapnum við Ragga Bjarna og byltingarkenndum breytingum í fjölmiðlum, og þá einna helst í útvarpi þar sem Þorgeir var frumkvöðull, ekki síst með stofnun Rásar tvö árið 1983.

Þátturinn Mannamál er á dagskrá Hringbrautar kl. 20 í kvöld.

Sjá nánar: „Ég var léleg fyllibytta“

Sjá nánar: „Gleymdi Svavari Gests á biðstofunni“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ótrúleg breyting – Leit út eins og moldvörpurotta en er núna hið mesta kvennagull

Ótrúleg breyting – Leit út eins og moldvörpurotta en er núna hið mesta kvennagull
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ekkert drepur kynlöngunina hraðar en þetta – Björguðu sambandinu með dramatískri ákvörðun

Ekkert drepur kynlöngunina hraðar en þetta – Björguðu sambandinu með dramatískri ákvörðun
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu
Fókus
Fyrir 1 viku

Friends hópurinn græðir enn ótrúlegar fjárhæðir á þáttunum

Friends hópurinn græðir enn ótrúlegar fjárhæðir á þáttunum
Fókus
Fyrir 1 viku

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone