fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

Svona eyðir ríkasti maður heims auðæfunum

Fókus
Sunnudaginn 23. febrúar 2020 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jeff Bezos, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Amazon, er ríkasti maður heims. Auðæfi hans eru metin á tæplega 130 milljarða dollara en hann hefur eytt gríðarmiklu fé í steinsteypu síðustu ár. Hann er talinn einn af stærstu landeigendum í gjörvöllum Bandaríkjunum og keypti nýlega dýrasta húsið í Los Angeles.

Viðskiptamógúllinn skildi við eiginkonu sína til 24 ára, MacKenzie Bezos, í fyrra og var því haldið fram að það væri meðal dýrustu skilnaða sögunnar. Óljóst er hve mikið af fasteignabraski Jeffs skilaði sér til MacKenzie við skilnaðinn. Í dag eru auðæfi MacKenzie metin á tæplega fjörutíu milljarða dollara sem þýðir að hún er ein ríkasta kona heims. Kíkjum á í hvað peningur ríkasta fólks heims hefur farið í síðustu ár og áratugi.

Á þrjár íbúðir Hér má sjá bygginguna þar sem Jeff á þakíbúð og tvær íbúðir til.

Þakíbúð og tvær til

Jeff hefur gengið frá stórum kaupum eftir að skilnaðurinn gekk í gegn. Hann keypti til að mynda þrjár samliggjandi íbúðir á 42. stræti í New York í júní í fyrra og greiddi fyrir þær áttatíu milljónir dollara, um tíu milljarða króna. Um er að ræða þakíbúð á þremur hæðum og tvær íbúðir fyrir neðan hana. Samtals er um að ræða tólf svefnherbergi og tæplega 1.600 fermetra.

Lok, lok og læs Öryggisvarla í Medina er mikil.

Stórlaxablús

Jeff á tvö heimili í Medina í Washington. Hann greiddi tíu milljónir dollara fyrir aðra eignina árið 1998. Sú er rúmir 1.900 fermetrar og búin fimm svefnherbergjum og fimm baðherbergjum. Hin eignin er smærri í sniðum, litlir 770 fermetrar, en kostaði 53 milljónir dollara. Medina er í grennd vvið Washington-vatnið í Seattle og þar hafa fjölmargir stórlaxar búið sér heimili, til að mynda Bill Gates.

Glæsihýsi Spænski stíllinn heillar.

Tvær flugur

Amazon-jöfurinn keypti glæsihýsi í spænskum stíl í einu af dýrustu hverfum Los Angeles, Beverly Hills, árið 2007. Það kostaði 24,45 milljónir dollara og er búið sjö svefnherbergjum og sjö baðherbergjum. Við húsið er tennisvöllur, stór sundlaug, fjórir gosbrunnar og bílskúr fyrir sex bifreiðar. Tíu árum síðar keypti Jeff minna hús við hliðina á glæsihýsinu. Það hús keypti hann á 12,9 milljónir dollara og er það aðeins búið fjórum svefnherbergjum.

Þvílíkt hús Er það 165 milljóna dollara virði?

Þau dýrustu

Nýjustu kaup Jeffs áttu sér stað fyrir stuttu þegar hann keypti Warner-óðalið sem var hannað fyrir Jack Warner, fyrrverandi forstjóra Warner Bros. Studios. Jeff keypti húsið af milljarðamæringnum David Geffen á 165 milljónir dollara. Er þetta dýrasta heimili sem hefur verið selt í Los Angeles.

Stórbýli Loftmynd af búgarði Jeffs í Texas.

Búgarðurinn

Mógúllinn á einnig búgarð um fimmtíu kílómetra fyrir utan bæinn Van Horn í Texas. Þar eru einnig höfuðstöðvar geimfyrirtækis Jeffs, Blue Origin, sem skráði sig í sögubækurnar árið 2015 þegar endurnýtanlegu eldflauginni New Shepard var skotið á loft út í geim og henni síðan lent.

Stærsta heimili í Washington Gamla textílsafnið.

Textílsafn tekið í gegn

Höfuðborg Bandaríkjanna, Washington DC, heillar milljarðamæringinn einnig en hann keypti gamalt textílsafn í borginni árið 2016. Það kostaði hann 23 milljónir dollara, en um sögufrægan stað er að ræða í hverfinu Kalorama. Hverfið er vinsælt meðal ríka og fræga fólksins en Obama-hjónin búa rétt hjá, sem og turtildúfurnar Ivanka Trump og Jared Kushner. Hús Jeffs telur rúma 2.500 fermetra og er stærsta heimilið í Washington DC. Nú ku Jeff vera að endurbæta húsið fyrir tólf milljónir dollara.

Húsið á móti Það er látlausara.

Snemma á þessu ári keypti Jeff síðan fjögurra herbergja hús hinum megin götunnar fyrir nokkrar milljónir til að vernda einkalíf sitt.

Geggjað útsýni Hin sögufræga Century-bygging.

1, 2, 3, 4

Jeff á þrjár íbúðir í hinni sögufrægu Century-byggingu í New York með útsýni yfir Central Park. Íbúðirnar keypti hann á 7,65 milljónir dollara árið 1999. Hann keypti síðan fjórðu íbúðina í byggingunni á 5,3 milljónir dollara árið 2012.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 21 klukkutímum

Peter Andre gæti fengið sekt vegna þess að hann nefnir ekki dóttur sína – Íslendingar hafa rýmri rétt til að trassa að nefna börn

Peter Andre gæti fengið sekt vegna þess að hann nefnir ekki dóttur sína – Íslendingar hafa rýmri rétt til að trassa að nefna börn
Fókus
Í gær

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lét sig hverfa ein og berfætt á Ítalíu – „Þegar ég skoða myndir af mér á þessum tíma þá sést alveg greinilega að ég er mjög veik“

Lét sig hverfa ein og berfætt á Ítalíu – „Þegar ég skoða myndir af mér á þessum tíma þá sést alveg greinilega að ég er mjög veik“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?

Diddy do it? – Rappari, athafnamaður eða Epstein rappsenunnar?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður