

Elmar Diego, faðir áhrifavaldsins Sólrúnar Diego, er kominn á fast með Freyju Ösp Burknadóttur. Parið afhjúpaði samband sitt á Facebook í gær og greindi Smartland frá fregnunum.
Það sem Smartland vakti einnig athygli á er að Freyja Ösp er jafngömul nýju stjúpdóttur sinni. Sólrún Diego er fædd 19. janúar 1991 og Freyja Ösp er fædd 22. maí 1991. Sólrún er því heilum fjórum mánuðum eldri en kærasta pabba síns.
Elmar er 46 ára, fæddur 15. júlí 1973 og það er því 18 ára aldursmunur á parinu.