Fegurðardrottningin Anna Lára Orlowska og frumkvöðullinn Nökkvi Fjalar Orrason eru hætt saman. MBL.is greinir frá.
Nökkvi Fjalar greindi frá því á Instagram í gær að hann hafi sett íbúðina sína á leigu og flutt í bílskúrinn hjá foreldrum sínum.
„Þetta er ekki svalasta move sem ég hef tekið enda er mér skítasama um það. Þetta var gáfulegasta moveið! Takk mamma og pabbi fyrir að taka á móti mér, styðja mig og hjálpa mér með mín framtíðarplön,“ skrifaði hann með færslunni.
https://www.instagram.com/p/B4X69NmgIS6/
Anna Lára var krýnd Ungfrú Ísland árið 2016 og Nökkvi Fjalar er einn stofnanda Áttan Miðlar. Hvorugt þeirra hefur tjáð sig um sambandsslitin opinberlega.