fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Umsóknarfrestur í Svartfuglinn rennur út á morgun

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 9. janúar 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðustu forvöð til að senda handrit í keppnina um Svartfuglinn er í dag. Umsóknarfrestur rennur út á morgun.

Upphaflegur skilafrestur var til 1. janúar, en fresturinn var framlengdur til 10. janúar. Handritum skal skilað í þríriti til Veraldar að Víðimel 38, 107 Reykjavík. Þau eiga að vera merkt dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi. Höfundurinn má ekki hafa gefið út glæpasögu áður. Komist dómnefndin að þeirri niðurstöðu að ekkert handrit uppfylli kröfur hennar getur hún ákveðið að veita ekki verðlaunin það ár.

Verðlaunin eru stofnuð af Yrsu Sigurðardóttur og Ragnari Jónassyni í samvinnu við bókaútgáfuna Veröld. Samkeppnin er ætluð höfundum sem hafa ekki sent frá sér glæpasögu áður. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk hefðbundinna höfundarlauna samkvæmt rammasamningi Félags íslenskra bókaútgefanda og Rithöfundasambands Íslands. Einnig býðst sigurvegaranum samningur við umboðsmanninn David H. Headley, en tímaritið Bookseller útnefndi hann sem einn af 100 áhrifamestu mönnum breskrar bókaútgáfu árið 2015.

Sigurvegari Svartfuglsins á síðasta ári, Eva Björg Ægisdóttir, sendi frá sér bókina Marrið í stiganum sem þaut strax upp á metsölulista bókabúðanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Gerðu plötu á einni helgi

Gerðu plötu á einni helgi
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar