fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Katrín Sif er líklega víðförlasti Íslendingur sögunnar

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 17. janúar 2019 21:00

Katrín Sif Einarsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það má leiða að því líkur að Katrín Sif Einarsdóttir sé víðförlasti Íslendingur allra tíma. Þrátt fyrir að vera aðeins á þrítugasta og fyrsta aldursári hefur Katrín Sif ferðast til 217 landa á jarðarkringlunni. Rétt er að geta þess að viðurkennd ríki Sameinuðu þjóðanna eru 195 talsins en með því, til dæmis, að telja Grænland og Færeyjar sem sér lönd í stað Danmerkur er með góðu móti hægt að telja upp í um 230 lönd.

Katrín Sif byrjaði ung að árum að ferðast. Faðir hennar er íslenskur en móðir hennar er ættuð frá Suður-Ameríkuríkinu Gvæjana. Eftir skilnað foreldra hennar ólst hún upp í Vancouver í Kanada en heimsótti Ísland reglulega. Fyrir rúmi ári fjallaði DV um þau tímamót Katrínar Sifjar að ná að ferðast til 200 landa fyrir þrítugt. Það tókst henni þegar hún dvaldi á Maldives-eyjum yfir afmælið sitt en áttaði sig þá á því að hún hafði talið vitlaust og var í raun að ferðast til lands númer 201!

Blaðamaður nýtti tækifærið þegar Katrín Sif var á landinu á dögunum til þess að setjast niður með henni og ræða ferðalögin og lífsstílinn sem hún efast um að hún geti nokkurn tímann gefið upp á bátinn. Hún stendur á vissum tímamótum því faðir hennar, Einar Óskarsson, lést í sumar. „Það var auðvitað mikið áfall og það er búið að taka talsverðan tíma að ganga frá öllum lausum endum.“

Er ekki í keppni í að safna löndum

Það er mjög óvanalegt að Katrín Sif sé stödd á Íslandi yfir vetrarmánuðina enda segist hún ekki vera mikil aðdáandi íslenska vetrarins og þá er það sérstaklega myrkrið sem leggst yfir allt drjúgan hluta sólarhringsins. „Ég upplifi Íslendinga oft eins og hálfgerð bjarndýr, sem leggjast í dvala á veturna en hressast svo og leika á als oddi á sumrin,“ segir hún. Þrátt fyrir að elska Ísland þá er hún hrifnari af því að elta sólina. „Ísland á stærstan sess í hjarta mínu. Því meira sem ég ferðast um heiminn því meira elska ég landið. Þrátt fyrir að ég hafi tengingar víða þá er Ísland alltaf staðurinn sem ég kalla heimili mitt og það mun aldrei breytast,“ segir Katrín Sif.

Undanfarin tólf ár hefur Katrín Sif tekið að sér ýmiss konar leiðsögn, sérstaklega í hestaferðum, yfir sumarmánuðina á Íslandi en svo yfirgefið landið þegar hausta tekur og flakkað um heiminn í 8–9 mánuði. Það fer því fjarri að hún sé að „safna“ löndum með því að dvelja örstutt í hverju landi fyrir sig. Hún tekur sér tíma á hverjum stað og reynir að kynnast innfæddum og menningu þeirra.

„Ég er ekki í neinni sérstakri keppni í að reyna að ferðast til allra lands heims á sem skemmstum tíma. Ég held að sjálfsögðu utan um hvaða lönd og staði ég hef heimsótt, en ég er að gera þetta fyrir sjálfa mig, fyrst og fremst. Ég upplifi oft að aðrir séu spenntari yfir landafjöldanum en ég,“ segir Katrín Sif.

Hún segist skipuleggja ferðir sínar þannig að hún dvelji á svipuðum menningarsvæðum. „Ég hoppa ekki á milli heimsálfa enda er það dýrt og mjög lýjandi. Ekki bara ferðalagið heldur líka fyrir hugann að aðlagast sífellt mismunandi tungumálum, siðum og venjum. Til dæmis ferðaðist ég um Vestur-Afríku í einni ferð, Norður-Afríku í annarri ferð og svo framvegis,“ segir Katrín Sif.

Hún á aðeins eftir að heimsækja örfá viðurkennd ríki en í þeim hópi eru Lýbía, Úsbekistan, Túrkmenistan, Mið-Afríkulýðveldið og Suður-Súdan. „Ég hef verið í vandræðum með að fá vegabréfsáritun til fyrstu þriggja. Ástandið er ótryggt í hinum tveimur og því hef ég aðeins beðið með að heimsækja þau. Mér liggur ekkert á,“ segir Katrín Sif.

 

Í Víetnam

Árstekjurnar aldrei yfir milljón

Aðspurð hvort hún fái aldrei nóg af þessum ferðalögum segir hún: „Nei, ég kann mjög vel að meta þennan lífsstíl. Ég elska að vera frjáls og legg ekki mikið upp úr veraldlegum gæðum.“ Að hennar sögn hafa útborgaðar árstekjur hennar aldrei farið yfir eina milljón íslenskra króna og því þarf hún að ferðast afar sparlega. Hún segist nánast vera komin með doktorsgráðu í að finna ódýrt flug. „Ég er oft fengin til þess að aðstoða fjölskyldu og vini við að finna ódýr fargjöld. Málið er að helstu leitarsíður eru oft ekki með samning við sömu lággjaldaflugfélögin. Það þarf því að leita á nokkrum síðum og þannig er hægt að púsla saman ferð með hagstæðum hætti,“ segir Katrín Sif.

Þar sem hún þarf að halda vel utan um fjármálin á ferðum sínum þá velur hún oft ódýrasta valkostinn, hún ferðast því mikið með rútum. „Það hefur ekki verið neinn lúxus að fara í langar rútuferðir í Afríku og nú síðast í Indlandi. En það er mikil upplifun og maður fær meiri innsýn í líf innfæddra. Þetta er þó líklega ekki fyrir alla,“ segir hún kímin.

Þegar kemur að gistingu þá fer Katrín Sif óhefðbundnar leiðir. „Ég gisti yfirleitt ókeypis hjá heimafólki í gegnum svokallað sófahopp (e. couchsurfing). Það er allur gangur á því hvernig aðstæður eru í boði en að mínu mati er þetta er afar skemmtilegur ferðamáti,“ segir Katrín Sif. Sem dæmi má nefna að hún heimsótti Bangladess í fyrsta skipti á dögunum og gisti þá hjá tyrkneskum flugmanni sem búsettur var í höfuðborg landsins, Dakka. „Ég var bara búin að gista í íbúðinni hans í nokkra daga þegar hann var skyndilega kallaður til vinnu. Þá rétti hann mér bara lyklana og bað mig að læsa þegar ég færi,“ segir Katrín Sif og brosir. Hún segir að slíkt traust og vinarþel sé regla frekar en undantekning á ferðum hennar og það sé meðal annars ástæðan fyrir því hversu vel hún kann að meta þennan ferðamáta.

Katrín Sif kunni vel við sig í Bangladess

Hún segist aldrei hafa lent í neinum teljandi vandræðum en vissulega hafi allra þjóða vonbiðlar stundum gert hosur sínar grænar fyrir henni. Það hafi stundum reynst hvimleitt en Katrín Sif leysti það með því að ferðast um með hring á fingri og gefa þar með í skyn að hún væri lofuð. Það minnkaði allt slíkt ónæði til muna.

Sér um norðurljósa-jógaferðir

Erindi Katrínar Sifjar til Íslands í janúar er að taka að sér fararstjórn í nýrri tegund af ferðaþjónustu, jógaferðum með áherslu á að upplifa norðurljósin. „Líklegast þekkjast slíkar ferðir hvergi annars staðar í veröldinni og það verður spennandi að taka þátt í þessu verkefni. Þetta verða tvær ferðir sem ég sé um núna í byrjun árs með bandaríska ferðamenn. Það verður spennandi að sjá hvernig til tekst og þá verður vonandi framhald á,“ segir Katrín Sif.

Hún segir að sér hafi boðist verkefnið í október í fyrra og slegið til. Eina vandamálið var að hún hafði vissulega iðkað jóga en hafði ekki kennararéttindi. „Ég sagðist einfaldlega ætla að græja það og fann að lokum skemmtilegt mánaðarnám í Goa í Indlandi,“ segir Katrín Sif. Þar dvaldi hún í rúman mánuð í góðu yfirlæti. „Ég kunni vel við mig í Goa. Það er ekki sami hraðinn og lætin þar og annars staðar í Indlandi,“ segir Katrín Sif. Eftir vikudvöl áttaði hún sig skyndilega á því að í rúmt ár hafði hún ekki sofið jafn margar nætur í sama rúmi. „Það var mjög skrýtin tilfinning. Ég er alltaf á flakki og jafnvel þegar ég kem heim til Íslands þá er ég strax farin af stað í ferðir með útlendinga sem leiðsögumaður og þar sem hver nótt er á nýjum stað. Ég kunni þó ágætlega við að slaka á og klára námið,“ segir Katrín Sif.

Katrín Sif kunni vel við sig í jóganámi í Goa.

Hún reiknar með að taka að sér enn fleiri verkefni sem fararstjóri erlendis á næstu árum. „Þetta er það sem ég kann og lifi fyrir, að ferðast. Ég fór með hóp til Suður-Afríku fyrir nokkru síðan og það gekk mjög vel. Ég mun starfa með einhverjum hætti við ferðamennsku í framtíðinni,“ segir Katrín Sif.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig