Það er eins og jólin hefjist fyrr í Kauptúni en annars staðar á landinu en sala á jólavarrningi hefur byrjað snemma í gegnum árin í IKEA. Eitthvað hefur IKEA sofið á verðinum því Costco er fyrr á ferðinni í ár. Það er Morgunblaðið sem greinir frá þessu.
Jólavörurnar byrjuðu að tínast inn í Costco í síðustu viku og nú þegar hafa nokkur jólatré verið seld, þar af eitt sem er þriggja metra hátt. Samkvæmt upplýsingum frá heildsölurisanum fara jólavörurnar að detta inn í verslanir keðjunnar á heimsvísu um þetta leyti.
Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við HÍ, hefur rannsakað jólahefðir Íslendinga og annarra í gegnum tíðina. Hann sagði í samtali við Morgunbblaðið að það væri mjög óvenjulegt hér á landi að jólaundirbúningur hefjist svona snemma.
„Þetta er nokkuð sem maður sér oftar erlendis en hér. Íslendingar hafa haft einhverjar reglur um það hvenær má byrja að spila jólalög og svona. Hérlendis sér maður viðbrögð ef einhver setur jólaljós upp allt of snemma, svo samfélagið hefur sínar leiðir til að undirstrika óskrifaðar samfélagsreglur,“
Þó svo að Costco byrji að selja jólavörur svona snemma þá þýðir það ekki endilega að siðir Íslendinga hafi breyst.
„Þetta eru náttúrlega fyrst og fremst verslanir sem eru að hugsa um að selja vörur. Í Bretlandi leiðist fólki það ef sala á jólavarningi hefst svona snemma. Þegar jólin koma loksins er maður búinn að fá alveg nóg af þeim. Við þurfum bara að sjá hvernig við Íslendingar tökum í þetta. Þetta verður ekki að sið Íslendinga fyrr en þeir taka siðinn upp.“
Terry bendir síðan á að framboð verslana geti haft áhrif. Costco gæti vissulega fært bandarískar venjur inn í íslenskt samfélag en bara ef Íslendingar hafa áhuga á því að taka upp þær venjur.