fbpx
Mánudagur 01.desember 2025
Fókus

Katrín Edda gekk fram á Karl Bretaprins í London: „Með eyrun og allt saman“

Fókus
Mánudaginn 20. maí 2019 16:00

Katrín Edda Þorsteinsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verkfræðingurinn og samfélagsmiðlastjarnan Katrín Edda Þorsteinsdóttir birtir stórskemmtilegt myndband á Instagram-síðu sinni þar sem hún sést klárlega taka andköf yfir því að hafa gengið framhjá Karli Bretaprins í fríinu sínu í London, en Katrín Edda er búsett í Þýskalandi.

Í fyrrnefndu myndbandi má heyra Katrínu Eddu rugla Karli við syni sína tvo, Vilhjálm og Harry, enda ekki á hverjum degi sem maður hittir kóngafólk á förnum vegi.

„Ókei! Við vorum að labba framhjá Prins Harry, ég er ekkert að grínast í ykkur!! Ah, nei, Prins Harry, Vilhjálmi meina ég. Vá, ég er ekkert að djóka í ykkur, þetta er hann þarna! Vilhjálmur, með eyrun og allt saman,“ skrifar Katrín Edda við myndbandið, en eftir stutta leit á Google fékk hún það staðfest að þetta væri hvorki Vilhjálmur né Harry heldur faðir þeirra, Karl.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan með því að smella á örina hægra megin á myndinni:

 

View this post on Instagram

 

London! ?? Hápunktur fyrsta dagsins var klárlega að við löbbuðum mjög svo óviðbúin framhjá Karli Bretaprins og royal sérfræðingurinn sem ég er tók þetta upp á vídjó (swipe right) segjandi „Ókei! Við vorum að labba framhjá Prins Harry, ég er ekkert að grínast í ykkur!! Ah nei, Prins Harry, Vilhjálmi meina ég. Vá, ég er ekkert að djóka í ykkur, þetta er hann þarna! Vilhjálmur, með eyrun og allt saman.“ Hver segir btw Vilhjálmur en ekki William í dag? Og gott hann tók eyrun sín með. ? Og svo eftir staðfestingu hjá Google mundi ég að bræðurnir eru Harry og William og pabbi þeirra, þessi með eyrun og allt saman, heitir víst Charles, jú, eða Karl. Og fórum svo á crossfit æfingu í gær þar sem ég missti 55 kg stöng á hausinn minn (ekkert vont, ég er vön höfuðhöggum) og svo er Eurovision í kvöld!! Markus getur ekki beðið. Það er lygi. En ég sagði honum að það að vera í sambandi með Íslendingi þýddi að horfa þyrfti á Eurovision. Öll ár að eilífu. ❤ ?? Mikið gaman, mikið fjör. – Long weekend in London! ?? Highlight of the first day was definitely when we casually passed prince Charles and being the royal expert I am, I first thought his name was Harry. Then Wilhelm. Then William and then remember that the guy „with the ears“ is actually called Charles. Well done Katrin. ?? ? And yesterday we went training in a small crossfit box here were I dropped 55 kg barbell on my head (didn’t hurt, I’m fine) and tonight is Eurovision!!! Markus can’t wait. That’s a lie. I told him being in a relationship with an Icelander means watching Eurovision every year for the rest of our lives. ?? ? ?? #insicknessandinhealth #london #princewilhelm #royals #nowgonnasearchforlittlearchie #eurovision

A post shared by Katrin Edda (@katrinedda) on

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Hjólar í fyrrverandi prinsinn og sparar ekki stóru orðin – „Hann er fáfróður, frekur og heimskur“

Hjólar í fyrrverandi prinsinn og sparar ekki stóru orðin – „Hann er fáfróður, frekur og heimskur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fékk frábært starf sem barnfóstra hjá auðugum hjónum – En svo byrjaði hún að sofa hjá móðurinni

Fékk frábært starf sem barnfóstra hjá auðugum hjónum – En svo byrjaði hún að sofa hjá móðurinni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Pattra ósátt við frétt Vísis um skilnaðinn: „Að gera það svo á þennan ósmekklega máta finnst mér fyrir neðan allar hellur!“

Pattra ósátt við frétt Vísis um skilnaðinn: „Að gera það svo á þennan ósmekklega máta finnst mér fyrir neðan allar hellur!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gunnar og Sigmundur Ernir ljúka bókakonfektinu í ár

Gunnar og Sigmundur Ernir ljúka bókakonfektinu í ár
Fókus
Fyrir 5 dögum

O (Hringur) hlaut sérstök dómnefndarverðlaun í Berlín

O (Hringur) hlaut sérstök dómnefndarverðlaun í Berlín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Segist hafa verið byrlað ólyfjan á hótelbar

Segist hafa verið byrlað ólyfjan á hótelbar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ástralskur áhrifavaldur smakkaði KFC á Íslandi – „Þetta er málið með íslenskan mat“

Ástralskur áhrifavaldur smakkaði KFC á Íslandi – „Þetta er málið með íslenskan mat“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Grænland geymir mestu ráðgátu Norðurlandasögunnar

Grænland geymir mestu ráðgátu Norðurlandasögunnar