fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Hvenær er strax? – Allavega ekki strax í dag

Eyjan
Þriðjudaginn 26. maí 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að sums staðar gangi brösuglega að koma saman starfhæfum meirihlutum eftir sveitarstjórnarkosningarnar á dögunum.

Í Hafnarfirði, eina sveitarfélaginu þar sem Framsókn vann á, fylltist oddviti Framsóknar reyndar svo miklum eldmóði að hann myndaði ekki bara einn meirihluta heldur tvo á hálfri viku og virðist hafa viljað geta valið milli þeirra. Það fór eins og það fór og allir móðguðust út í Framsókn sem situr eftir með sárt ennið á meðan fyrrverandi tilvonandi samstarfsflokkarnir snúa saman bökum og mynda meirihluta án Framsóknar.

Orðið á götunni er að það sé til marks um lánleysi Framsóknar að eini kosningasigurinn í kosningunum skuli gersamlega klúðrast á örfáum dögum, snúast upp í andhverfu sína fyrir klúður oddvitans. Það er eins og Framsókn kunni bara ekki lengur að vinna.

Í Reykjavík er staðan önnur Þar vann Sjálfstæðisflokkurinn á og oddviti flokksins útnefndi sig næsta borgarstjóra við svo búið og vatt sér í að ræða við oddvita Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknar. Enn bólar samt ekkert á nýjum meirihluta í borginni. og engar formlegar meirihlutaviðræður eru hafnar.

Orðið á götunni er að ástæðan fyrir þessum seinagangi sé sú að Sjálfstæðismenn geti ekki komið sér saman um það með hverjum þeir eiga að mynda meirihluta. Hægt er að mynda tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum. Gallinn er bara að margir í Sjálfstæðisflokknum vilja alls ekki vinna með Miðflokknum. Ástæðurnar eru af ýmsum toga. Sumir vilja ekki vinna með fyrrverandi Sjálfstæðismönnum sem hafa yfirgefið flokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn. Þá þótti mörgum Sjálfstæðismönnum framganga Miðflokksins í kosningabaráttunni hafa beinst með ósæmilegum hætti gegn Sjálfstæðisflokknum.

Orðið á götunni er að einnig beri nokkuð á því að Sjálfstæðismenn vilji ekki heldur vinna með Viðreisn. Talsvert er um fyrrverandi Sjálfstæðismenn í Viðreisn og fátt er innvígðum og innmúruðum Sjálfstæðismönnum verr við en þá sem hafa sagt skilið við flokkinn og farið annað. Svo þykir mörgum Sjálfstæðismönnum ótækt að fara í meirihluta með því sem þeir kalla vók og komma. Brynjar Níelsson hefur t.d. afskaplega lítinn áhuga á að vinna með Viðreisn. Hann er alkunnur íhaldsmaður sem hugnast vel að vinna með Miðflokknum.

Kjarni málsins er að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna er klofinn í tvennt og er í mesta basli með að koma sér saman um það hvaða meirihluta hann vill mynda í Reykjavík. Það var vandamál á síðasta kjörtímabili að flokkurinn var ekki aðeins klofinn heldur var hann þríklofinn í borginni. Þó að mannabreytingar hafi orðið í efstu sætum framboðslista flokksins tókst ekkert að leysa það vandamál og orðið á götunni er að í raun sé Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík tæplega stjórntækur.

Í kosningabaráttunni lagði Sjálfstæðisflokkurinn áherslu á að hann ætlar að gera breytingar í borginni strax. Strax getur hins vegar verið teygjanlegt hugtak. Orðið á götunni er að mögulega verði myndaður meirihluti í Reykjavík strax í sumar. En kannski verður það strax næsta vetur sem nýr meirihluti lítur dagsins ljós. Svo verður hægt að vinda sér í breytingarnar strax næsta sumar eða strax eftir tvö ár. En fyrst þarf vitaskuld að fara strax í formlegar meirihlutaviðræður. Það gerist náttúrlega strax og Sjálfstæðismenn koma sér saman um það hvað þeir vilja gera strax.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir