fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Eyjan

Árni Stefán skrifar: Opið bréf til atvinnuvegaráðherra – Fordæmum ofbeldi gegn MAST – fordæmum ofbeldi MAST

Eyjan
Mánudaginn 11. maí 2026 15:30

Árni Stefán Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Virðulegi ráðherra,

Hanna Katrín Friðriksson.

Inngangur

Ég heiti Árni Stefán Árnason, er dýraverndarlögfræðingur og skrifaði ML ritgerðina Um réttaráhrif og framkvæmd dýraverndarlaga á Íslandi frá upphafi. Það var frumkvöðulsverkefni með leiðbeiningum virts hæstaréttarlögmanns í dag. Ritgerðin er opin öllum þeim sem lesa vilja á skemman.is

Mér hefur verið umhugað um dýravernd frá því ég var lítið barn og dýrahald hefur verið lífsstíll minn í marga áratugi, einkum hundahald tegundanna írsks og ensks seta. Ég hef á löngum tíma komið að björgun fjölmargra dýra, veitt þeim tímabundið eða framtíðarheimili. Að lokum þá er ég upphafsmaður blóðveramálsins á Íslandi og upphafsmaður Brúneggjamálsins.

Grafalvarleg staða opinberrar dýraverndar

Skrif þess eiga nokkurn og mjög vel ígrundaðan en alvarlegan aðdraganda. Þér eruð æðsti yfirmaður dýravelferðar á Íslandi og hafið eflaust lesið, jafnvel heyrt, gagnrýnisraddir um Matvælastofnun (Mast). Þær eru ekki uppspuni eins og lesa má um í skýrslu ríkisendurskoðanda til Alþingis útgefin í nóvember 2023.

Gagnrýnisraddirnar eru réttmætar og flestar vel rökstuddar. Mast hefur á undanförnum vikum og mánuðum vegið gróflega að réttindum dýra og eigendum þeirra skv. lögum um velferð dýra, eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og mörgum fleiri lögum. Margir hafa leyft sér að svara fyrir sig, með réttu. Aðrir óttast að svara Mast. Já þeir óttast að tjá sig í réttarríki hvar ríkir tjáningarfrelsi. Það er raunveruleg ógn.

Mikið einhliða fjölmiðlarými Mast

Á undanförnum dögum hafa forstjóri Mast og yfirdýralæknir fengið mikið rými í fjölmiðlum til að lýsa meintu ofbeldi frá, það sem þau kalla viðskiptavinum stofnunarinnar, í sinn garð og er þar verið að vísa í þolendur aðgerða Mast. Dýravinir fordæma ofbeldi á starfsmenn Mast en fordæma um leið ofbeldi Mast gegn mörgum þeirra.

Fréttaflutningurinn gefur ranga mynd og er til þess fallinn að blekkja æðri stjórnendur sem hafa með málaflokkinn að gera, þingið, jafnvel dómstóla, fjórða valdið og almenning. Þolendur hafa ekkert rými fengið utan einstaka frétta á dv.is um mig en ég er sjálfur þolandi sem virði í hvívetna fyrstu grein laga um velferð dýr sem hljóðar svo:

„Markmið laga þessara er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Enn fremur er það markmið laganna að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.“

Annað en það sem kemur fram í ákvæðinu hefur aldrei verið sannað upp á mig af Mast né  á skjólstæðinga mína sem hafa þurft að þola sömu örlög ógnarstjórnar Mast og ég. Samt brýtur stofnunin allt meðalhóf gagnvart mér og öðrum, stundar þjófnað á dýrum, hefur orðið uppvís að skjalfalsi við ólöglega umskráningu hunda í dyraauðkenni.is yfir á nafn stofnunarinnar. Þetta virðist fremur regla en undantekning.

Mast snérist gegn mér eftir birtingu skrifa minna á hinum virta miðli nutiminn.is – Hömlulaus valdníðsla og ofbeldi Mast. Áður hafði greinin birst sem skoðun á visir.is en var ritskoðuð og fjarlægð. SYN og RYV eru þeir miðlar sem sagt hafa einhliða frá  um meint ofbeldi fólks gegn Mast, ofbeldi sem ég hef enga trú að sé raunveruleiki, heldur tilbúningur til að fanga samúð fjölmiðla og almennings því daga Mast má nú telja enda hafið þér ákveðið að leggja stofnunin niður frá og með næstu áramótum.

Vegna aðfarar Mast að mér en þó sérstaklega að viðkvæmum hundum mínum, sem Mast neitar mér að upplýsa um ástand á, hvar er haldið, við hvaða aðstæður og hvort þeir séu saman eins og þeir eru vanir, sá ég mér ekki annað fært en að kæra 8 lykilstarfsmenn Mast fyrir ýmis gróf brot af ásetningi gegn mér og hundum mínum á ýmsum ákvæðum setts réttar. Kærurnar hafa verið teknar til meðferðar af Ríkislögreglustjóra.

Sættir vonlausar

Ég hef reynt að ná sáttum við Mast til að fá dýr mín  til baka og tryggja velferð þeirra því ekkert er að getu minni til að tryggja dýrum sínum besta mögulega atlæti. Ég hef lagt milljónir í það.  Dýralæknir minn staðfestir fullkomið heilbrigði hunda minna. Um það fjallar tölvupóstur sem ég sendi yður í vikunni og er stílaður á Viktor S. Pálsson, yfirmann stjórnsýslu Mast og áframsent til yfirdýralæknis og forstjóra. Engin viðbrögð berast. Mast þráast við að leysa mál í þágu velferðar dýra.

20 óumdeilanleg og rökstyðjanleg lykilatriði um starfshætti Mast í trássi við lög og rétt.

Á meðal þess sem ég get talið upp og rökstutt um háttalag Mast undanfarin misseri er eftirfarandi.

  1. Valdníðsla með misbeitingu laga af ásetningi til að hafa dýr af fólki
  2. Sýnir eigendum og dýrum þeirra ofbeldi t.d. með því að hýsa heilbrigð vörslusvipt dýr við algerlega óviðunandi aðstæður t.d. í Húsdýragarðinum og mögulega við eftirlitsleysi á hundahótelum landsins.
  3. Ríkisendurskoðandi er búinn að gagnýra MAST harðlega fyrir eftirlit sitt í skýrslu til Alþingis fyrir slaka stjórnsýslu, sem hefur bara versnað. Þá hafa þingmenn óskað er skýrslu frá forstjóra MAST um eftirlitið því ljóst er að þeim þykir ekki allt með feldu.
  4. Fjölmiðlar gera sér ekkert far um að hlusta á sögur þeirra sem MAST kallar „viðskiptavini“ en eru með réttu þolendur grófs ofbeldis á köflum.
  5. Fréttaflutningur um raunverulega stöðu er rangur og óréttlátur á meðan rödd þolenda fær ekki að heyrast.
  6. Stjórnarhættir Mast m.t.t stjórnsýslulaga og laga um velferð dýra eru komnir langt út fyrir lög og rétt
  7. Matvælastofnun dæmir í eigin málum þ.e. tekur stjórnsýsluákvarðanir, sem kæranlegar eru en getur tekið yfir ár að fá úrskurð um hjá ráðuneyti yðar, sem er gróft brot á málshraðareglu stjórnsýslulaga.
  8. Þér eruð semsagt með kærur frá þolendum í yfir heilt ár til meðferðar. Ekkert þokast í úrskurðum þrátt fyrir óskir til Umboðsmanns að ýta á eftir því.
  9. MAST stundar skjalafölsun með því að skrá dýr á sitt nafn í dyraaudkenni.is hvað hún hefur enga heimild til að lögum.
  10. Eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, fjölmörg hegningarlagaákvæði, ákvæði laga um velferð dýra eru brotinn miskunnarlaust og af ásetningi af Mast svo stofnunin nái fram vilja sínum, sannanlega þvert á lög og rétt. Leiðbeiningu um aðgerðir fær Mast frá lögfræðingum sínum þannig að ásetningurinn er augljós.
  11. Amk 8 starfsmenn MAST, forstjóri, yfirdýralæknir, héraðsdýralæknir, eftirlitsdýralæknar og lögfræðingar hafa verið kærðir til Ríkislögreglustjóra með kærum í síðustu viku

vegna framangreinds og eru fleiri kærur á leiðinni. Vitnað er í um 20 lagaákvæði um meint brot á lögum.

13.Dýraeigendur þora ekki að gagnrýna MAST, eru hræddir við ógnartilburði Mast og hótanir um vörslusviptingu

14.Dýralæknar þora ekki að gagnrýna MAST eru hræddir við sömu ógnartilburði Mast.

starfsleyfis

  1. MAST stundar sannanlega rangar sakargiftir í eftirlitsskýrslum
  2. MAST handvelur dýr til að valda eigendum sem mestum sársauka. Það er óumdeilanlegt og líka sannanlegt.

17, Mast lætur hjá líða að koma dýrum til hjálpar sem í eigu rekstaraðila sbr. nýlegan þátt Kveiks um loðdýraeldi

  1. Mast lætur hjá líða að hafa afskipti af rekstaraðilum í búfjáreldi sem sannanlega hafa orðið uppvísir að illri meðferð dýra.
  2. Mast hikar jafnvel ekki við að hjóla í eldra fólk, sem ráðuneytið úrskurðar síðan að hafi verið ólögmæt aðför. Mál Guðmundu Tyrfingsdóttur er eitt besta dæmið um það.

20.Ofangreint eru staðreyndir sem fjölmiðlar virðast ei vilja heyra nér fjalla um utan dv.is

Rökin um svívirðilegt háttalag MAST gegn þolendum (viðskiptavinum) eru endalaus, algerlega endalaus – framkvæmdavaldið hlustar ei, þingið hlustar ei og fjórða valdið er tregt til að hlusta – Yfirdýralæknir segir í óstöðvandi yfirlæti, hroka og skilningsleysi við angistarfulla þolendur um afdrif dýra sinna: smyrjið ykkur þolinmæði

Þetta eru staðreyndir

Áskorun

Ég skora á yður, hæstvirtur ráðherra, að skoða framvindu kærumála  okkar þolenda í ráðuneytinu. Upplýsingar um aðila þeirra mála get ég veit yður með því að þér hafið beint samband við mig. Ég er skráður á ja.is.

Ég legg þó ennþá meiri áherslu á að þér takið, helst strax, stjórnarhætti Mast til ítarlegrar skoðunar og setjið hemil á núverandi starfshættir Mast í dýravelferð. Svo virðist sem ekkert eftirlit sé með því og Mast fari sínu oft fram algerlega í trássi við lög og rétt.

Ef þér kærið yður um þá getið þér kynnt yður framvindu míns máls á facebook síðu minni https://www.facebook.com/profile.php?id=100090080053142

Niðurstaðan fyrir okkur hina vörslusviptu en einföld. Það er tilvitnun í heiti nýjustu bókar Gyrðis Elíassonar, þess mikla dýravinar: Ótíð í víti. Það skiptir Gyrði máli að það sé hlustað hann. Það skiptir mig  líka máli. Þess vegna sendi ég yður þetta, þér eruð mín síðasta von, í vissri örvæntingu um afdrif dýra minna, á stjórnsýslustigi.

Ég þakka yður fyrir lesturinn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar