fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Uppnám í Hádegismóum

Eyjan
Þriðjudaginn 1. apríl 2025 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að uppnám hafi orðið á ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins í Hádegismóum í gær. Forsaga málsins er sú að Kolbrún Bergþórsdóttir birti í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins þrumupistil þar sem hún fer hörðum orðum um Sjálfstæðisflokkinn, einstaka þingmenn hans og ekki síst þingflokksformanninn, Hildi Sverrisdóttur, fyrir framgöngu flokksins í máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur.

Kolbrún skrifar: „Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að gera þetta mál að pólitísku máli. Það skal djöflast í forsætisráðherra eins og hægt er og saka Kristrúnu Frostadóttur um illar hvatir. Flokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Hildur Sverrisdóttir, hefur komist nálægt því að gjaldfella sjálfa sig með stöðugu rápi upp í ræðustól Alþingis og farið þar með sömu fáránlegu ásakanirnar um meint trúnaðarbrot og lygar forsætisráðherra.“

Hún heldur áfram: „Maður hlýtur að spyrja sig á hvaða leið Sjálfstæðisflokkurinn sé. Þjóðin hafnaði flokknum rækilega í síðustu kosningum og sitthvað hefðu sjálfstæðismenn átt að læra af því. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa hjalað um það í allnokkurn tíma að breikka þurfi flokkinn og koma stefnumálum vel til skila svo að þjóðin fáist til að kjósa flokkinn. Nú virðist enginn hafa tíma til að sinna þessum brýnu verkefnum því það er talið svo ofur nauðsynlegt að gala á forsætisráðherrann.

Þá skammar Kolbrún Jón Gunnarsson fyrir „mafíósa-tal“ og hnykkir síðan út með því að óska flokknum langrar setu í stjórnarandstöðu, enda sé flokkurinn nálægt því að vera óstjórntækur.

Þessi skrif Kolbrúnar virðast hafa farið alvarlega fyrir brjóstið á ritstjóra Morgunblaðsins, enda er blaðið málgagn Sjálfstæðisflokksins og almennt illa séð að blaðamenn tuski flokkinn til, líkt og Kolbrún gerði um helgina.

Orðið á götunni er að Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra, hafi verið sendur út af örkinni til að eiga lítið samtal við Kolbrúnu og leiða henni fyrir sjónir að óæskilegt sé að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn og þingflokksformann hans með svo beinskeyttum hætti. Sérstaklega mun hafa sviðið undan orðum Kolbrúnar um stöðugt ráp þingflokksformannsins upp í ræðustól Alþingis með „með sömu fáránlegu ásakanirnar um meint trúnaðarbrot og lygar forsætisráðherra.“

Orðið á götunni er að Andrési hafi ekki tekist að halda samtalinu við Kolbrúnu á jafn lágstemmdum nótum og að var stefnt. Viðbrögð hennar hafi verið snögg og afdráttarlaus og langt frá þeim tónstyrk sem Andrés lagði upp með. Ekki hafi farið fram hjá neinum nærstöddum er hún þrumaði yfir Andrési að ef yfirmenn blaðsins hefðu eitthvað við hennar skrif að athuga yrðu þeir einfaldlega að reka hana. Hún væri með sex mánaða uppsagnarfrest sem þeir mættu þá gera sér að góðu að borga.

Orðið á götunni er að það hafi verið niðurlútur Andrés Magnússon sem fór á brott með þessi skilaboð Kolbrúnar Bergþórsdóttur til yfirstjórnar blaðsins. Spennandi verði í framhaldinu að fylgjast með því hver vinni störukeppnina sem hafin er í Hádegismóum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir