fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Aníta og Bryndís til Maven

Eyjan
Fimmtudaginn 14. mars 2024 13:50

Aníta Björk Bárðardóttir og Bryndís Charlotte Sturludóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjónustu- og ráðgjafafyrirtækið Maven hefur ráðið til sín þær þær Anítu Björk Bárðardóttur og Bryndísi Charlotte Sturludóttur sem báðar koma inn í teymi gagnasérfræðinga Maven.

Aníta Björk útskrifaðist nýlega með meistaragráðu í viðskiptagreiningu frá Tækniháskólanum í Danmörku. Hún hefur reynslu úr fjárhagsgreiningu frá Íslandsbanka þar sem hún starfaði áður.

Bryndís Charlotte er með BS gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og kemur til Maven með starfsreynslu frá NetApp Iceland, þar sem hún vann að verkefni sem tengdist gagnatengingum á milli svæða.

„Maven býður upp á framsæknar lausnir í vaxandi geira þjónustu- og ráðgjafafyrirtækja í upplýsingatækni og nýtingu gagna. Við vinnum náið með fyrirtækjum og stofnunum í að umbreyta gögnum í þekkingu og verðmæti. Við leggjum áherslu á að þróa skapandi og nýstárlegar leiðir til að greina, skilja og nýta gögn til hins ítrasta og það verður mikill styrkur af Anítu og Bryndísi í þeim verkefnum sem fram undan eru á þessu sviði.“ segir Helgi Hrafn Halldórsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Maven.

Í tilkynningu frá Maven segir að fyrirtækið sé framsækið þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni. Það hóf rekstur sinn árið 2021. Í dag eru starfstöðvar félagsins tvær, í Reykjavík og Akureyri, auk þess sem það er með starfsfólk í Varsjá. Félagið leggur áherslu á að gera stjórnendum og starfsfólki fyrirtækja kleift að öðlast þekkingu og innsýn á þau gögn sem þau búa yfir. Kjarnaþjónustan felst í því að bjóða fyrirtækjum í ýmsum atvinnugeirum upp á aðkomu gagnasérfræðinga Maven sem skapa þekkingu úr margvíslegum gögnum, m.a. með greiningu og stefnumótun, uppbyggingu gagna- og tækniumhverfa, sjálfvirknivæðingu á verkferlum, samþættingu gagna á milli kerfa og gerð mælaborða fyrir stjórnendur. Stjórnendur fyrirtækja fá þannig betri innsýn inn í reksturinn sem leiðir til betri ákvörðunartöku og aukins virðis. Nánari upplýsingar á www.maven.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“