fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

Hildur svarar Össuri með föstu skoti

Eyjan
Miðvikudaginn 21. febrúar 2024 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur svarað vangaveltum Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi ráðherra og þingmanns, um næsta formann Sjálfstæðisflokksins.

Eyjan greindi frá málinu í gær en Össur skrifaði langa færslu á Facebook um arftaka Bjarna Benediktssonar sem formanns Sjálfstæðisflokksins og nefndi nokkur nöfn sem orðuð hafa verið við formannsstólinn þegar Bjarni stendur upp.

Sjá einnig: Össur nefnir óvæntan kandídat sem gæti tekið við af Bjarna

Össur nefndi Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Guðlaug Þór Þórðarson en þau hafa helst verið orðuð við formanninn að undanförnu. Össur nefndi svo óvæntan kandídat sem ekki hefur mikið farið fyrir í umræðunni, Hildi Sverrisdóttur.

„Annars horfði ég á Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins í Silfrinu seint í gærkvöldi. Hún var ansi vösk, kjaftfor án þess að vera dónaleg og nógu ófyrirleitin til að heimta afsökunarbeiðni frá Samfylkingunni fyrir klúður Sjálfstæðisflokksins í útlendingamálum. Hún sýndi satt að segja fágæta hæfileika til að verja vondan málstað. Er Hildur kannski leiðtogaefnið,“ spurði Össur í færslu sinni.

Hildur skrifaði færslu á Facebook í gærkvöldi þar sem hún tók fram að hún hafi alltaf haldið dálítið upp á Össur. Ekki væri laust við að hún væri upp með sér að fá að vera andlag í „ekta smjörklípu“ þar sem Össur reynir að beina kastljósinu frá vandræðaganginum í Samfylkingunni.

„Ég hélt reyndar að klípurnar þyrftu að hafa einhver örlítil tengsl við veruleikann en það er kannski engin krafa. Ekki ætla ég að þykjast hafa meira vit á smjörklípufræðunum en Össur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu