fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Loforð í nafni íslenzku þjóðarinnar verða að standa

Eyjan
Mánudaginn 12. febrúar 2024 06:00

Ole Anton Bieltvedt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir munu hafa séð viðtal, eða viðtöl, við Bjarna Benediktsson, utanríkisráðherra, en hann mætti bæði á Stöð 2 og í RÚV í viðtal í kvöldfréttum, 6. febrúar, um stöðu þeirra Palestínumanna, alls 128 manns, þar af 75 börn, sem höfðu fengið hér dvalarleyfi stjórnvalda á grundvelli laga og reglna um fjölskyldusameiningu.

Stuttur utanríkisráðherraferill Bjarna hefur fyrir undirrituðum ekki verið góður eða gleðilegur. Skemmst er að minnast „Var þetta árás?“ spurningarinnar í Osló, þegar fréttamaður spurði hann um afstöðu til tiltekinnar árásar Ísraelshers á flóttamannabúðir í Gaza, þar sem ekki voru aðeins sprengd upp hús og mannvirki, þau lögð í rústir og jöfnuð við jörðu, heldur líka fólk, konur og börn, limlest, tætt í sundur og drepin.

„Var þetta árás?“ Ég spurði sjálfan mig, hvers konar innri maður býr eiginlega í þessum manni. Mér hefur oft verið sagt að Bjarni væri „góður drengur“. Ekki verður séð á síðustu atburðum, afstöðu og frammistöðu Bjarna að þetta mat sé með öllu rétt.

Þegar ég horfði og hlustaði á Bjarna í fréttum 6. febrúar fór hreinlega  um mig, það lá við að mér yrði illt. Svo ömurlegur var málflutningur og framkoma mannsins. Þóttist vilja þessum dvalarleyfishöfum allt gott, þóttist vera fullur af mannúð og mannkærleika, fullyrti að hann væri að berjast fyrir lausn fyrir þá þannig að þeir gætu komizt úr þeim hörmungum og því fári, sem þeir lifa – og/eða deyja – við á Gaza þessa dagana.

Inn á milli kom hins vegar annar tónn, önnur afstaða, og það greinilega sú sanna, í ljós. Bjarni virðist ekki hafa haft mikla samúð með þessu hrjáða og aðframkomna fólki og veigrar sér greinilega á allan hátt við að standa við skuldbindingar íslenzkra stjórnvalda, skuldbindingar ríkisstjórnarinnar, gagnvart þessum 128 manns, 75 börnum, 44 konum og 9 körlum, sem hafa mátt kynnast helvíti á jörðu síðustu mánuði.

Á RÚV sagði Bjarni m.a. þetta 6. febrúar: „Við getum ekki haldið áfram að senda út þau skilaboð, að á Íslandi sé auðveldast að koma og fá dvalarleyfi, auðveldast að fá fjölskyldusameiningu og innviðir á Íslandi eru hreinlega sprungnir. Þess vegna hefur ráðherranefndin verið að skoða þetta í heildarsamhengi“.

„Skoða þetta í heildarsamhengi,“ m.ö.o. hefur ráðherranefndin það verkefni, að leita leiða til að íslenzk stjórnvöld geti komið sér út úr, svikið, dvalarleyfisveitingar sínar gagnvart þessu aumingjans fólki? Hvað þarf að skoða í afgreiddu máli, veittum dvalarleyfum? Hér er lyktin af óheilindum og undanbrögðum sterk. Þó að Bjarni beri hér höfuðábyrgð er þetta mál auðvitað á ábyrgð allrar ríkisstjórnarinnar, þá ekki sízt á ábyrgð forsætisráðherra.

Fyrir undirrituðum og, ég hygg, fjölmörgum öðrum, væri rétt og heiðarleg leið og lausn þessa máls sú að setja fullan kraft í það að hjálpa þessu fólki, skv. gefnum loforðum og veittum dvalarleyfum, senda diplómatíska fulltrúa íslenzku ríkisstjórnarinnar, jafn marga og jafn fljótt og verða má, strax, til að hjálpa þessum fólki að komast úr því víti, sem því er haldið í, og koma því til Kaíró. Ef það næðist allt á skömmum tíma mætti svo flytja þetta fólk í einni flugvél, fleiri eru það ekki, til landsins.

Aðgerð af þessu tagi myndi sýna heilindi og heiðarleika.

Allt þetta fólk á ættingja hér, einmitt þess vegna fékk það dvalarleyfi, og má ætla að þeir muni taka á móti komumönnum, taka þá inn í sín hús og inn á sín heimili og sinna þeim þannig að álag þessa eina hóps muni ekki leggjast af miklum þunga á innviði.

Annað mál er það að þessi ráðherranefnd getur svo auðvitað rætt og tekið á nýjum og opnum flóttamannamálum skv. því sem efni standa til. Eflaust er það rétt að við Íslendingar þurfum að staldra við og skoða vel, hversu langt við getum gengið í móttöku erlendra flóttamanna. Auðvitað eru þar mörk, eins og í öllu, en það er bara allt annað mál.

Loforð í nafni íslenzku þjóðarinnar verða að standa!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður