fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Eyjan

Svarthöfði skrifar: Af hverju vinnum við ekki öll á Hagstofunni?

Svarthöfði
Föstudaginn 12. janúar 2024 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgunblaðið greinir frá því í morgun í látlausri frétt að Hagstofan, sjálfstæð undirstofnun forsætisráðherra, hafi nýlega gert stofnanasamning við sérfræðinga sína. Væntanlega hefur það verið gert með upplýstu samþykki ráðherrans. Á ferðinni eru samningar sem tryggja sérfræðingunum 5% launahækkun, sem bætist við þau 7% sem sérfræðingarnir fengu í síðustu kjarasamningum. Þannig hafi laun sérfræðinganna hækkað um yfir 12%, sem blaðið bendir á að sé umtalsvert meira en þau 6,75% sem almennt fékkst úr síðustu kjarasamningum.

Svarthöfði sér ekki betur en þarna hafi verið vel að verki staðið. Með þessu er Hagstofan að festa sig í sessi sem mótandi afl þegar kemur að kjörum hinna vinnandi stétta. Skemmst er að minnast frumkvæði stofnunarinnar þegar öllum starfsmönnum var gefið frí milli jóla og nýárs í hitteðfyrra, án þess að það skerti orlofsrétt þeirra. Sú nýbreytni var svo þróuð áfram um síðustu hátíðir þegar það var látið heita að starfsmenn hefðu ekki með mætingarskyldu en væru á bakvakt.

Svarthöfði þarf ekki að hugsa lengi til að átta sig á að það er ekki nokkur betur til þess fallinn að vera í fararbroddi þróunar og nýbreytni á vinnumarkaði. Stofnunin hefur enda yfirgripsmikil gögn um þróun verðlags og launa sem birt eru reglulega og því upplagt að hún taki að sér að leggja línurnar. Söfnun þessara gagna og hagskýrslugerð öll einfaldast líka mjög þegar skýrsluhöfundur hefur sjálfur ákveðið megin drættina.

Við blasir að óþarfi er að trufla embætti ríkissáttasemjara frekar með kjaraviðræðum breiðfylkingar verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins sem nú standa, þar sem línan er komin. Hún liggur reyndar nokkru ofar en Svarthöfða skilst að sé þar til umræðu, en skítt með það. Ef Hagstofan, með öll sín gögn og upplýsingar, telur að óhætt sé að hækka laun um 5% og útdeila ókeypis frídögum, þá getur varla nokkur amast við því.

Það er svo sjálfstætt mál og til athugunar hvort við ættum ekki öll að vinna bara á Hagstofunni. Það myndi sannarlega leysa margan vanda.

Kannski væri allra skynsamlegast að sameina bara Hagstofuna og embætti ríkissáttasemjara. Þau eru svo gott sem á sömu addressu við Borgartún hvort eð er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Talaði Trump af sér?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er
Eyjan
Fyrir 1 viku

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hannes segir kosningarnar vera mikinn ósigur vinstri aflanna en líst vel á að Sjálfstæðisflokkurinn verði í stjórnarandstöðu

Hannes segir kosningarnar vera mikinn ósigur vinstri aflanna en líst vel á að Sjálfstæðisflokkurinn verði í stjórnarandstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári ósáttur við 5% þröskuldinn – Sósíalistar hefðu annars fengið inn tvo þingmenn

Gunnar Smári ósáttur við 5% þröskuldinn – Sósíalistar hefðu annars fengið inn tvo þingmenn