fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Eyjan

Nýir stjórnendur Heilbrigðislausna Origo

Eyjan
Þriðjudaginn 12. september 2023 10:18

Myndatexti: Kjartan Hansson og Arna Harðardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arna Harðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Heilbrigðislausna Origo. Einnig hefur Kjartan Hansson verið ráðinn sem stjórnandi í vöru- og viðskiptaþróun Heilbrigðislausna Origo.

Arna hóf störf hjá Origo í nóvember 2020 þar sem hún leiddi sölu- og markaðsstýringu á sviði heilbrigðislausna. Arna er þar öllum hnútum kunnug en hún hefur átt stóran þátt í stefnumótun sviðsins undanfarna mánuði og mun halda þeirri vinnu áfram í nýju hlutverki.

Heilbrigðislausnir Origo eru á gífurlega spennandi vegferð sem ég er stolt að fá að leiða. Við búum yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á sviði heilbrigðislausna sem við munum nýta til að halda áfram að þjónusta íslenskt heilbrigðiskerfi og efla okkur enn frekar í nýsköpun og vöruþróun. Tækifærin innan heilbrigðis- og velferðartækni eru óteljandi og mikilvægt halda áfram þeirri góðu vinnu sem hefur átt sér stað síðustu ár. Ísland er í algjörri sérstöðu þegar kemur að innleiðingu á tæknilausnum innan heilbrigðiskerfisins og mikilvægt að nýta það tækifæri vel,“ segir Arna.

Kjartan Hansson mun taka að sér að leiða verkefni á sviði vöruþróunar og nýsköpunar og koma að þróun nýrra lausna á því sviði. Kjartan hóf störf hjá Origo árið 2019 sem forstöðumaður Stafrænna þjónustulausna á hugbúnaðarsviði Origo.

Það er gríðarlegur fengur að fá Kjartan inn í teymið okkar, hann býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem styður þá vegferð sem við erum á,“ segir Arna.

Jón Björnsson, forstjóri Origo, segir að Arna hafi spennandi sýn á hvernig nota megi tækni til að ná betri árangri og jákvæðari upplifun af heilbrigðiskerfinu bæði fyrir starfsfólk og samfélagið. „Sú reynsla og þekking sem er fyrir hjá okkur og drifkraftur Örnu og Kjartans mun án efa skapa ný tækifæri á sviði heilbrigðistækni,“ segir Jón enn fremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nú þarf hægri hagstjórn og vinstri velferð

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nú þarf hægri hagstjórn og vinstri velferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Linda verður aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Health

Linda verður aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Health
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Deilt um lántökur Kópavogsbæjar – „Kópavogsbúar framtíðar eigi að axla ábyrgð á óábyrgum rekstri“

Deilt um lántökur Kópavogsbæjar – „Kópavogsbúar framtíðar eigi að axla ábyrgð á óábyrgum rekstri“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin