fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Eyjan

Heiðar Ingi Svansson: Þýddar bækur eru mikilvægur þáttur í að viðhalda íslenskunni – við verðum að spyrna við fæti vegna alvarlegrar stöðu þýðinga

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 10. desember 2023 10:30

Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikilvægt er að rjúfa þann vítahring sem útgáfa á þýddum erlendum bókum er komin í hér á landi. Þýðingar eru mikilvægur þáttur í því að viðhalda tungumálinu. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir ljóst að bókmenntastefna þurfi að taka á þeirri alvarlegu stöðu sem komin er upp varðandi bókmenntaþýðingar. Hann setur fram þá hugmynd að efla styrki til þýðinga á erlendum bókum geta verið mótvægisaðgerð með hliðstæðu í endurgreiðslunni  sem nú hefur verið við lýði í almennri bókaútgáfu í fimm ár og gefið góða raun. Heiðar Ingi er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins á Eyjunni.

Heiðar Ingi Svansson - Þýðingar.mp4
play-sharp-fill

Heiðar Ingi Svansson - Þýðingar.mp4

Þú nefndir þýðingar áðan, að mjög hefði dregið úr þýðingum. Hér áður fyrr komu út fyrir jólin innbundnar, þýddar bækur en þetta er nánast horfið. Eiga þýðingar undir högg að sækja, hefurðu áhyggjur af þessu?

Já, ég hef áhyggjur af þessu. Ég hef talað um að almennt séum við ekki komin að krossgötum þó að við séum farin að nálgast það. Í þýðingunum erum við klárlega stödd þar. Á því verður bókmenntastefnan að taka með einhverjum hætti,“ segir Heiðar Ingi.

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér :

Einnig er hægt að hlusta á Spotify eða hlaðvarpsþjónustu Google:

Ef við ætlum að viðhalda tungumálinu verðum við að gera eitthvað varðandi þýðingar. Það er ljóst að sala á kiljum, sem mikið til voru þýðingar, hefur dregist verulega saman og er ekki svipur hjá sjón miðað við það sem var. Áhugi fólks sem vill lesa bækur hefur ekkert breyst og ef þær eru ekki þýddar lengur þá bara lestu þær á frummálinu og það er ákveðin ógn við tungumálið.“ Heiðar Ingi segist ekki hafa einhverja patent lausn á þessu vandamáli en algerlega sé ljóst að bókmenntastefna þurfi að taka á þessu.

Við breytum kannski ekki þróuninni en það þarf að spyrna við fæti. Ef við getum einhvern veginn – eins og endurgreiðslan var á sínum tíma og hefur verið – þá er hún svona mótvægisaðgerð til þess einhvern veginn að styðja við þennan bransa á þessum tíma. Nú er staðan á þýðingunum þannig að það þarf eitthvað að gera í því, það þurfa einhverjar mótvægisaðgerðir að koma til,“ segir hann.

Það mætti hugsa sér að hvetja til þess með hærri styrkjum eða öflugri þýðingarsjóði, þannig að það væri meiri hvati hjá útgefendum til að gefa út þýðingar og þeir myndu gera það á þeirri forsendu að með því að fá meiri styrki þá skipti salan ekki eins miklu máli. Þetta er nefnilega þannig að þegar salan minnkar þá minnkar framboðið, þetta er vítahringur. Ef það væri einhver viðspyrna þannig að hægt yrði að gefa út fleiri þýðingar, myndi það hafa áhrif á sölu. Það þarf einhvern veginn að rjúfa vítahringinn, markaðurinn mun ekki leysa úr því,“ segir Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Ríkismiðlarnir snúa saman bökum

Svarthöfði skrifar: Ríkismiðlarnir snúa saman bökum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Málskotsrétturinn var virkur þegar Vigdís íhugaði að skrifa ekki undir EES

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Málskotsrétturinn var virkur þegar Vigdís íhugaði að skrifa ekki undir EES
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kolbrún komin með nóg af bókhaldslykla-kraðaki og segir að borgin eigi ekki að rannsaka sig sjálf í umdeildu málunum

Kolbrún komin með nóg af bókhaldslykla-kraðaki og segir að borgin eigi ekki að rannsaka sig sjálf í umdeildu málunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Umsækjandi um varaseðlabankastjórastöðu fékk tugmilljóna félag frá lögmanni sem rukkar bankann um hundruð milljóna

Umsækjandi um varaseðlabankastjórastöðu fékk tugmilljóna félag frá lögmanni sem rukkar bankann um hundruð milljóna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Mögnum tækifærin á hverjum stað og stækkum tækifæri okkar allra

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Mögnum tækifærin á hverjum stað og stækkum tækifæri okkar allra
Hide picture