fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Pósturinn stígur mikilvægt skref í átt að sjálfbærni

Eyjan
Fimmtudaginn 21. september 2023 16:00

Ásdís Káradóttir, sjálfbærnistjóri Póstsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pósturinn hefur gengið til samstarfs við póstfyrirtæki víða um heim sem vilja vinna saman að sjálfbærnimálum og setja sér sameiginleg markmið. Verkefninu stýrir International Post Corporation (IPC) og snýst það um að draga úr kolefnisspori póst- og flutningafyrirtækja og flestar aðrar hliðar sjálfbærni.

Samstarf fyrirtækjanna hófst 2009 en Ísland, Kýpur og Malta bættust í hópinn í vor og eru þátttökulöndin þá orðin 31 talsins í fimm heimsálfum.

IPC fjallaði um þátttöku Íslands á sínum miðlum og hafði eftir Þórhildi Ólöfu Helgadóttur, forstjóra Póstsins, að aðild fyrirtækisins að verkefninu væri nauðsynlegt næsta skref í átt að sjálfbærni.

Við viljum læra af öðrum fyrirtækjum í póstþjónustu og lítum á verkefnið sem tækifæri til að skerpa sýnina og aga okkur í upplýsingagjöf um sjálfbærni. Auk þess veitir þátttaka í verkefninu okkur aðgang að viðburðum og vinnustofum svo við getum lært hvert af öðru og unnið að stöðugum umbótum,“ segir Ásdís Káradóttir, sjálfbærnistjóri Póstsins. „Verkefnið veitir viðmið til að mæla framfarir og Pósturinn getur þá líka borið sig saman við þau póstfyrirtæki sem standa fremst á hverju sviði. Það hvetur okkur til dáða,“ bætir hún við.

Póstfyrirtæki sem taka þátt í verkefninu heita því að helminga samanlagða árlega kolefnislosun sína á tímabilinu 2019-2030. Þorri losunarinnar stafar frá byggingum (44%) og flutningum (56%). Markmiðið er að helmingurinn af samanlögðum bílaflota póstfyrirtækjanna gangi fyrir vistvænu eldsneyti, þar af gangi 25% fyrir rafmagni en 75% nýti endurnýjanlega orkugjafa.

Við stöndum nokkuð vel að vígi hér á landi með greiðum aðgangi að heitu vatni og endurnýjanlegum orkugjöfum. Rekstur bygginga Póstsins vegur því ekki jafnþungt í losuninni og hjá flestum póstfyrirtækjum og um helmingur farartækja okkar gengur nú þegar fyrir rafmagni eða metani. Við vinnum hörðum höndum að því að minnka kolefnissporið og getum bætt okkur á fjölmargan annan máta, m.a. með skýrari stefnumótun, gagnaöflun og upplýsingagjöf,” segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir