fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Björn Leví útskýrir lýðræðisveislu Sjálfstæðisflokksins og snilldarhugmyndir hans

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 4. nóvember 2022 08:00

Bjarni og Guðlaugur Þór takast á um formannsembættið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram um helgina. Þar takast Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson á um embætti formanns flokksins. Þeir og Sjálfstæðisflokkurinn eru umfjöllunarefni í pistli sem Björn Leví Gunnarsson skrifar í Morgunblaðið í dag. Hann ber yfirskriftina „Lýðræðisveisla hinna útvöldu“.

„„Við erum með bestu hugmyndirnar,“ sagði Guðlaugur Þór þegar hann kynnti framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins sem fram fer „í stærstu lýðræðisveislu landsins“ næstu helgi. Reyndar er lýðræðisveislan ekki öllum flokksmönnum aðgengileg. Lýðræðisveislan er fyrir útvalda fulltrúa,“ segir Björn í upphafi og víkur síðan að snilldarhugmyndum Sjálfstæðisflokksins:

„Snilldarhugmyndir Sjálfstæðisflokksins hafa falist í því að hlutast til um að skipa útvalda flokkshesta í stöðu dómara, selja útvöldum ríkiseignir, forða eigum útvalinna úr sjóðum rétt fyrir hrunið … og hrunið sjálft. Það er ekki snefill af efa í huga Guðlaugs Þórs um að engu þarf að breyta,“ segir hann.

Því næst víkur hann að Bjarna og segir: „Að mati Bjarna þarf að viðhalda stöðugleikanum. Sá meinti stöðugleiki felst í því að halda Sjálfstæðisflokknum við kjötkatlana – með Bjarna í fararbroddi. Annars fari allt til fjandans. Bjarni styður líka snilldarhugmyndir Sjálfstæðisflokksins; þ.e.a.s. bestu hugmyndirnar fyrir suma – en klárlega ekki fyrir alla, alltaf, alls staðar. Hvert vandamál fyrir sig krefst sérhæfðrar lausnar. Hamar er frábær til að lemja niður nagla, en hann skilar litlu við að fella tré. Hamar Sjálfstæðisflokksins er frelsi og lágir skattar. En þeir duga ekki til að fella tréð sem stendur á milli mismunandi hópa í samfélaginu. Frelsi fyrir hverja? Ekki fyrir fátækt fólk, eldri borgara eða öryrkja sem ná ekki endum saman í óðaverðbólgu og hækkandi stýrivöxtum. Ekki fyrir flóttafólk sem er hent með valdi úr landi í skjóli nætur. Það býr ekki í „landi tækifæra“ Sjálfstæðisflokksins. Það er land tækifæranna fyrir útvalda.“

Hann segir síðan að hinir útvöldu borgi hlutfallslega læstu skattana, launþegar og lífeyrisþegar borgi nánast tvöfaldan skatt á við þá sem nærast á fjármagnstekjum.

„Launþegar og lífeyrisþegar greiða líka hlutfallslega mest til velferðarsamfélagins. Þau sem þurfa að eyða hverri krónu til að lifa af greiða svo aftur af þeim skatt meðan tekjur fjármagnseigenda safna vöxtum og arði. Snilldarhugmyndir – fyrir hina útvöldu,“ segir hann.

„Svokölluð lýðræðisveisla Sjálfstæðisflokksins um helgina endurspeglar einmitt snilldarhugmyndir þeirra um lýðræðið og frelsið. Lýðræði og frelsi hinna útvöldu. Ég get alveg tekið undir það að athafnafrelsi og lágir skattar eru góð hugmynd. Sérhagsmunir skemma hins vegar fyrir og útkoman er bara frelsi fyrir suma,“ segir hann að lokum.

Hægt er að lesa pistil Björns í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins