fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024
Eyjan

Willum vill fella burt skilyrði um tveggja ára starfsreynslu talmeinafræðinga

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 14. desember 2021 13:24

mynd/Vilhelm

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Sjúkratryggingum Íslands að fella brott ákvæði úr rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um tveggja ára starfsreynslu sem skilyrði fyrir greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Starfshópur vinnur nú að greiningu á þjónustu talmeinafræðinga og hvernig henni verði best hagað til framtíðar með hliðsjón af lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Ný heildstæð samningsmarkmið um þessa þjónustu verða byggð á vinnu starfshópsins og er stefnt að því að SÍ og talmeinafræðingar geti hafið viðræður um nýjan samning á grundvelli þeirra eftir áramót.

„Við sem samfélag berum skyldur gagnvart þeim sem þurfa á þjónustunni að halda sem að langstærstum hluta eru börn. Það skiptir miklu að hægt sé að veita þessum börnum þjónustu eins fljótt og kostur er. Annars er viðbúið að vandi þeirra aukist og verði alvarlegri eftir því sem tíminn líður sem eykur enn frekar á þjónustuþörfina.“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Gert er ráð fyrir að unnt verði að fella brott umrætt ákvæði í byrjun næsta árs.

Talmeinafræðingar starfa nú á grundvelli rammasamnings sem tók gildi 1. nóvember árið 2017 með gildistíma til 31. október 2019. Frá þeim tíma hefur samningurinn verið framlengdur með samþykki beggja aðila um einn mánuð í senn. Ekki hefur náðst saman um nýjan samning en sem fyrr segir vinnur starfshópur nú að greiningu á þjónustu talmeinafræðinga og gerð heildstæðra tillagna um framtíðarfyrirkomulag hennar. Hópnum er ætlað að skila heilbrigðisráðherra tillögum sínum eigi síðar en 20. desember næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nú þarf hægri hagstjórn og vinstri velferð

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nú þarf hægri hagstjórn og vinstri velferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Linda verður aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Health

Linda verður aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Health
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Deilt um lántökur Kópavogsbæjar – „Kópavogsbúar framtíðar eigi að axla ábyrgð á óábyrgum rekstri“

Deilt um lántökur Kópavogsbæjar – „Kópavogsbúar framtíðar eigi að axla ábyrgð á óábyrgum rekstri“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin