fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Ágúst Ólafur: „Hugsið ykkur sorg þessa barns“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 7. júní 2021 15:21

Mynd/Fréttablaðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hugsið ykkur lítið barn sem fær ekki sömu heilbrigðisþjónustu og önnur börn, heilbrigðisþjónustu sem myndi bæði bæta heilsu þessa barns og sjálfstraust. Hugsið ykkur sorg þessa barns. Barnið sér jafnvel að jafnaldrar þess fá þessa heilbrigðisþjónustu, en ekki það sjálft.“

Svona hefst pistill sem Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar skrifar en pistillinn birtist fyrr í dag á Vísi. „Hugsið ykkur einnig sorg foreldra þessa barns sem vita að þau hafa ekki efni á því að veita barni sínu þessa nauðsynlegu heilbrigðisþjónustu. Þau hafa ekki efni á því að bæta líf barns síns,“ segir Ágúst en heilbrigðisþjónustan sem hann talar um eru tannréttingar.

Ágúst segir að því miður sé það raunveruleiki sumra barna að foreldrar hafi ekki efni á að bæta líf þeirra með tannréttingum. „Tannréttingar barna eru heilbrigðisþjónusta fyrir börn en tannréttingar barna hafa einfaldlega orðið eftir og þær eru dýrar,“ segir hann í pistlinum.

„Tannréttingar barna geta hæglega kostað fjölskyldur yfir eina milljón kr. og jafnvel kostað allt að tveimur milljónum kr. fyrir eitt barn. Þessu til viðbótar þurfa oft fleiri en eitt barn innan sömu fjölskyldu á tannréttingum að halda. Það segir sig sjálft að ekki hafa allir efni á slíku.“

Hann segir foreldra bera þennan gríðarlega kostnað og efnaminni foreldrar veigri sér því við að ráðast í tannréttingar fyrir börnin sín. „Það er fullkomlega óboðlegt að börnum sé mismunað eftir efnahag foreldra þegar kemur að tannréttingum.“

„Við erum því eftirbátar á þessu sviði“

Árið 2018 voru tannlækningar barna gerðar gjaldfrjálsar að fullu. Ágúst segir það hafa verið mikið gæfuskref en nú eigi að vera komið að því að tannréttinar verði líka gjaldfrjálsar. „Ég hef því nú samið og lagt fram þingmál á Alþingi sem gerir tannréttingar barna gjaldfrjálsar,“ segir hann.

„Áætla má að kostnaður við gjaldfrjálsar tannréttingar barna geti numið um 1,5 milljörðum kr. en núna lendir þessi kostnaður hjá barnafjölskyldum.“

Ágúst segir að fram til ársins 1992 hafi verulegur hluti af tannréttingakostnaði verið endurgreiddur en það sé ekki raunin lengur. „Einungis langalvarlegustu málin geta fengið 95% endurgreiðslu en þau eru eðli málsins mjög fá. Önnur börn geta fengið að hámarki 150.000 kr. styrk sem dugar skammt þegar algengur kostnaður við tannréttingar er 800 þúsund til 1,2 milljón kr,“ segir hann.

„Þessu til viðbótar hefur þessi lága styrkupphæð ekki breyst í 20 ár. Ef styrkurinn hefði fylgt verðlagi væri hann nú um 340 þúsund kr. Á Norðurlöndunum eru tannréttingar barna styrktar mun meira en á Íslandi. Við erum því eftirbátar á þessu sviði, eins og mörgum öðrum, þegar kemur að velferð barna og barnafjölskyldna.“

„Jöfnum leikinn fyrir öll börn“

Að lokum spyr Ágúst hver séu raunverulega bestu þingmálin og svarar svo spurningunni. „Það eru þingmál sem skipta máli bæði fyrir börn og barnafjölskyldur, ekki síst þeirra sem hafa minna fé milli handanna,“ segir hann.

„Þetta þingmál um gjaldfrjálsar tannréttingar sem ég hef nú lagt fram á Alþingi er eitt af þeim. Tökum því þetta eðlilega og réttláta skref saman. Jöfnum leikinn fyrir öll börn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki