Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um skipun Ásmundar Helgasonar í embætti dómara við Landsrétt frá 17. apríl 2020. Ásmundur var skipaður dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur í maí 2010 og gegndi því starfi allt þar til hann var skipaður dómari við Landsrétt frá 1. janúar 2018.
Fyrr í þessum mánuði baðst Ásmundur lausnar frá þeirri skipun og hefur dómsmálaráðherra ákveðið að leggja til við forseta Íslands að sú beiðni verði samþykkt og honum veitt lausn frá 16. apríl næstkomandi.
Ásmundur fær því lausn frá Landsrétti degi áður en hann verður skipaður dómari við Landsrétt að nýju, en Ásmundur var metinn hæfastur af fjórum umsækjendum um stöðuna.
Aðrir umsækjendur voru Ástráður Haraldsson héraðsdómari, Ragnheiður Bragadóttir landsréttardómari og Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Við skipun Ásmundar losnar embætti eins dómara í Landsrétti og verður það embætti auglýst laust til umsóknar innan tíðar.