fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

MMR: Enn fækkar stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins – Flokkurinn í sögulegri lægð

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 23. september 2019 13:59

Bjarni Benediktsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 18,3% og tæpu prósentustigi minna en við mælingu MMR í ágúst. Er það lægsta fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur mælst með frá upphafi mælinga MMR.

Fylgi Samfylkingar mældist 14,8% og minnkaði um tæp tvö prósentustig frá síðustu mælingu. Þá jókst fylgi Vinstri grænna, Pírata og Framsóknarflokksins um rúmt prósentustig hvert.

Allar breytingar á fylgi frá síðustu mælingu reyndust innan vikmarka og var því ekki tölfræðilega marktækur munur á fylgi flokka milli mælinga í ágúst og september.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 43,7%, samanborið við 38,8% í síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 18,3% og mældist 19,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,8% og mældist 16,8% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,8% og mældist 11,5% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 12,4% og mældist 11,3% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 12,0% og mældist 13,0% í síðustu könnnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,8% og mældist 10,4% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,2% og mældist 9,3% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,0% og mældist 4,1% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 2,0% og mældist 2,9% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,6% samanlagt.

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1045 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 9. til 16. september 2019

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,3%), myndu skila auðu (7,6%), myndu ekki kjósa (1,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega