fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Þórhildur valtar yfir Heiðrúnu – Tætir í sig rökin hennar: „Þetta eru verðmætin sem við eigum að fá“

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 8. desember 2019 20:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hvaða fyrirtæki eru það? Nefndu mér dæmi um þau fyrirtæki!“ sagði Heiðrún Lind Marteinsdóttir í Silfrinu í dag þegar Egill Helgason, umsjónarmaður þáttarins, undraðist víðtæk erlend fyrirttækanet íslenskra útgerðarfyrirtækja. „Það vill svo til að ég hef einmitt gert það,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, á Miðjunni í dag.

„Ég gerði það í ræðu um veiðigjaldafrumvarp ríkistjórnarinnar í fyrra og vísaði í umfjöllun RVK Media um aflandseignir fólks í sjávarútvegi,“ segir Þórhildur en í ræðunni nefndi hún mörg dæmi um þetta. „Hér er listinn afritaður en auðvitað er sjón sögu ríkari,“ segir Þórhildur og birtir listann sem lesa má hér fyrir neðan en segja má að listinn jarði spurningu Heiðrúnar

● Árni Stefán Björnsson, fjárfestir og eigandi smábátaútgerðarinnar Rakkanes ehf. Tengist Ocean Wealth Capital og Arctic Circle Invest á Tortólu

● Berglind Björk Jónsdóttir, eigandi Sjólaskipa. Tengist Stenton Consulting á Tortólu

● Björgvin Kjartansson, eigandi fiskverkunar- og útflutningsfyrirtækisins Hamrafells í Hafnarfirði. Tengist World Wide Seafoods and Trading Consulting á Tortólu

● Ellert Vigfússon, eigandi og framkvæmdastjóri hjá fiskútflutningsfryrirtækinu Icelandic Group og Sjóvík. Tengist Elite Seafood Panama Corp í Panama, Sorell Holding Promotion, Norys Capital og Becot Holding á Tortólu.

● Goodthaab í Nöf ehf, fiskútflutningsfyrirtæki í Vestmannaeyjum. Hluthafi í Arctic Circle Invest á Tortólu í gegnum félagið Nafarfoss ehf.

● Guðmundur Jónsson, eigandi Sjólaskipa. Tengist Champo Consulting Limited á Tortólu

● Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, fjárfestir og stjórnarformaður Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Tengist Tantami Venture og Tetris Estate á Tortólu

● Gunnlaugur Konráðsson, hrefnuveiðimaður. Tengist Maser Shipping og Arctic Circle Invest á Tortólu

● Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður hjá Jakobi Valgeiri í Bolungarvík. Tengist Aragon Partners í Panama.

● Jón Guðmundsson, eigandi Sjólaskipa. Tengist Sarin Systems Ltd. á Tortólu

● Kristján Vilhelmsson, hluthafi og útgerðarstjóri Samherja. Tengist Hornblow Continental Corp á Tortólu.

● Laufey Sigurþórsdóttir, eigandi fiskverskunar- og útflutningsfyrirtækisins Hamrafells í Hafnarfirði. Tengist World Wide Seafood and Trading Consulting a Tortólu

● Marinella R. Haraldsdóttir, eigandi Sjólaskipa. Tengist Sarin Systems á Tortóla

● Ragnheiður Jóna Jónsdóttir, eigandi Sjólaskipa. Tengist Aurora Contintenal Limited á Tortóla

● Sigurður Gísli Björnsson, eigandi fiskútflutningsfyrirtækisins Sæmarks. Tengist Freezing Point Corp í Panama.

● Theódór Guðbergsson, fiskverkandi og skipasali í Garði á Reykjanesi. Tengist Huskon International í Panama og Arctic Circle Invest á Tortólu.

● Valborg María Stefánsdóttir, eiginkona Gunnlaugs Kristinssonar. Tengist Maser Shipping á Tortólu.

● Þorsteinn Vilhelmsson, fjárfestir og einn stofnandi Samherja. Átti viðskipti við Cliffs Investments á Tortólu.

● Örn Erlingsson, eigandi útgerðarfyrirtækjanna Unga ehf. og Sólbakka. Eigandi Arctic Circle Corp í Panama.

Þórhildur segir sjávarútveginn hafa undanfarin ár dælt út arði í tugmilljarða tali. „Þessir fjármunir fara beint í vasa eigendanna, og stundum í aflandsvasa þar sem peningarnir eru í skjóli fyrir íslenskum yfirvöldum,“ segir hún. „Þetta eru verðmætin sem við eigum að fá af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Þetta er nú öll auðlindarentan.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“