fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Eyjan

Landspítali fær fimm milljóna landsbyggðarstyrk

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 7. október 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verkefni sem Landspítali vinnur að og felst í þróun tæknilausna til að stuðla að bættu aðgengi landsbyggðarinnar að sérfræðiþjónustu hlaut nýverið fimm milljóna króna styrk af byggðaáætlun Alþingis. Verkefnið snýr annars vegar að beinum samskiptum sjúklinga við sérfræðinga sjúkrahússins og hins vegar að þróun tæknilegra leiða til að skapa skilvirkan og öruggan farveg fyrir ráðgjöf sérfræðinga Landspítala við heilbrigðisstarfsfólk á landsbyggðinni, samkvæmt tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu.

„Konsúlt framtíðarinnar“

Þörf lækna og hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni fyrir aðstoð og ráðleggingar frá sérfræðingum Landspítala er mikil, líkt og segir í verkefnalýsingu Landspítalans. Mest af þessum samskiptum fer fram með símtölum og tölvupóstum eins og staðan er í dag. Þróunarverkefnið  — sem á Landspítala er kallað „Konsúlt framtíðarinnar“ — snýst um að útbúa farveg fyrir ýmsar samskiptaleiðir sem auðvelda „konsúlt“ og tryggja örugga skráningu upplýsinga í sjúkraskrá. Þannig geti sérfræðingar Landspítala og viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður við heilbrigðisstofnun úti á landi farið saman yfir sjúkrasögu sjúklings, skoðað blóðniðurstöður, hjartalínurit, röntgenmyndir o.fl. og enn fremur fengið aðstoð kerfisins til að leita uppi viðeigandi sérfræðinga þegar þess gerist þörf ef um alvarleg sjúkdómstilfelli er að ræða. Landspítali áætlar að virkni eins og að framan er lýst geti verið tilbúin til notkunar vorið 2020 og verði þá kynnt fyrir heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni.

Samskipti sjúklinga í heimabyggð við heilbrigðisstarfsfólk Landspítala

Verkefni sem Landspítali og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða hafa unnið að saman hefur þegar alið af sér fyrstu útgáfu að lausn sem gerir sjúklingum á Vestfjörðum mögulegt að eiga samtal við geðlækni með öruggri leið í gegnum Heilsugátt. Tæknilega séð er þessi lausn komin á notkunarstig en hægar hefur gengið að koma henni í daglegan rekstur en vonir stóðu til. Stefnt er að því að nýta hluta styrksins sem Landspítalinn hefur nú fengið til að bæta þjónustu við landsbyggðina til að þróa þessa samskiptaleið enn frekar og koma henni í dagleg not.

Þessi verkefni Landspítalans eru í samræmi við markmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030 um að jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og sama markmið er einnig sérstaklega skilgreint í byggðaáætlun Alþingis sem fjallar um fjarheilbrigðisþjónustu (verkefni A.5.).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi