fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Eyjan

Blaðamaður Fréttablaðsins svarar gagnrýni Stundarinnar: „Er mikill áhugamaður um svæsin rifrildi valdamanna”

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 23. október 2019 12:35

Jón Trausti Reynisson til vinstri og Björn Þorfinnsson til hægri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Trausti Reynisson, annar ritstjóra Stundarinnar, gagnrýndi í gær Fréttablaðið fyrir að slá upp á forsíðu hörðum ummælum Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmdastjóra SA, um gagnrýni Gylfa Magnússonar, formanns bankaráðs Seðlabankans, á frumvarp til laga um einföldun á samkeppnislöggjöfinni.

Gylfi telur að frumvarpið sé mjög að skapi fákeppnismógúla sem vilji forðast samkeppniseftirlit. Orðrétt sagði hann að „blautir draumar fákeppnismógúla væru að rætast“ með því.

Þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða Halldórs Benjamíns á þessari gagnrýni bankaráðsformannsins þá voru þau viðbrögð mjög hörð:

„Formaður bankaráðs verður að gæta þess að vegna stöðu hans er á hann hlustað, orð hans metin bæði hér á landi og erlendis. Það stendur upp á hann að skýra hvernig þetta samræmist stöðu hans og ég vænti þess að gengið verði eftir þeim skýringum.“

Fréttablaðið að ganga erinda fjármagnsaflanna

Jón Trausti gagnrýnir í pistli sínum í Stundinni að Fréttablaðið hafi kosið að slá þessum ummælum framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins upp á forsíðu og veltir því fyrir sér hvort þar sé ný ritstjórnarstefna blaðsins að raungerast í fréttaflutningi. Nýráðinn ritstjóri Fréttablaðsins, Jón Þórisson, kynnti ritstjórnarstefnu blaðsins í leiðara um síðustu helgi. Samkvæmt henni er það stefna Fréttablaðsins að halda uppi borgararlegum viðhorfum, víðsýni og frjálslyndi. Frelsi er gert hátt undir höfði og hag neytenda haldið á loftið. Jafnframt aðhyllist Fréttablaðið alþjóðlegt samstarf Íslendinga á breiðum vettvangi og horft sé til þess að dýpa slíkt samstarf til framtíðar. – Er þar talið að vísað sé til mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.

Dramatík hjá Stundinni, segir Björn

Höfundur umræddrar forsíðufréttar Fréttablaðsins er Björn Þorfinnsson. Hann svarar gagnrýni Stundarinnar í viðhorfsdálkinum „Frá degi til dags“ í dag. Notar hann millifyrirsögnina „Dramatísk hjá Stundinni“ og virðist þar henda gaman að Stundinni. Hann gefur síðan skýringu á forsíðuuppslættinum:

„Forsíðufrétt blaðsins í gær var talin marka tímamót í fjölmiðlasögu Íslands að mati ritstjóra Stundarinnar. Í stuttu máli vegna þess að blaðið væri augljóslega orðið verkfæri Evrópusinnaðra auðmanna.

Raunveruleikinn er þó sá að stuttu fyrir prent vantaði skyndilega forsíðufrétt og blaðamaður á vakt er mikill áhugamaður um svæsin rifrildi valdamanna.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Svona eykst sjálfstæði Íslands með ESB-aðild

Sigmundur Ernir skrifar: Svona eykst sjálfstæði Íslands með ESB-aðild
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Heiða Kristín Helgadóttir: Einkennilegt ef stóru samtökin vilja ekki fá botn í viðræður og niðurstöðu

Heiða Kristín Helgadóttir: Einkennilegt ef stóru samtökin vilja ekki fá botn í viðræður og niðurstöðu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Heiða Kristín Helgadóttir: Gott að þjóðaratkvæðagreiðslan komi ekki beint ofan í almenna pólitíska umræðu

Heiða Kristín Helgadóttir: Gott að þjóðaratkvæðagreiðslan komi ekki beint ofan í almenna pólitíska umræðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ofurvextir bjúgverpill sem hittir fyrir Seðlabankann sjálfan – draga úr virkni vaxtatækisins

Orðið á götunni: Ofurvextir bjúgverpill sem hittir fyrir Seðlabankann sjálfan – draga úr virkni vaxtatækisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Hvað er líkt með hagfræðingum og veðurfræðingum?

Svarthöfði skrifar: Hvað er líkt með hagfræðingum og veðurfræðingum?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Orðhengilsháttur

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Orðhengilsháttur