fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Héraðsdómur vísar frá kröfum Eimskips – Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samráði ekki talin ólögmæt

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 10. október 2019 16:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur með úrskurði uppkveðnum í dag vísað frá kröfum Eimskips (Eimskipafélags Íslands hf., Eimskips Íslands ehf. og TVG Zimsen ehf.) um að úrskurðað verði að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðu samráði Eimskips og Samskipa sé ólögmæt og að henni skuli hætt. Við uppkvaðningu úrskurðarins lýsti lögmaður Eimskips því yfir að fyrirtækið hygðist taka sér frest til að ákveða hvort úrskurðurinn yrði kærður til Landsréttar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu:

 

– Rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist að því hvort Eimskip og Samskip (Samskip Holding BV, Samskip hf., Landflutningar ehf. og Jónar Transport hf.) hafi haft með sér ólögmætt samráð á mörkuðum fyrir sjóflutninga, flutningsmiðlun og landflutninga og brotið gegn 10. gr. samkeppnislaga og 53. gr. EES-samningsins. Í tengslum við rannsóknina gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá fyrirtækjunum 10. september 2013 og aftur hjá Eimskipi 4. júní 2014.

– Samkeppniseftirlitið hefur haft möguleg brot fyrirtækjanna til samfelldrar rannsóknar og er hún vel á veg komin. Meðal annars hefur Samkeppniseftirlitið gefið fyrirtækjunum kost á að tjá sig um ítarlegt frummat eftirlitsins og þau gögn sem það byggir á, en eftirlitið gætir andmælaréttar fyrirtækja í málum af þessu tagi með því að gefa út svokallað andmælaskjal. Verður fyrirtækjunum gefið enn frekara tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á næstunni. Er umfang rannsóknarinnar, þar á meðal undirliggjandi gagnamagn, án fordæma við rannsókn samkeppnismála hér á landi.

– Í umfjöllun um kröfur Eimskips hefur komið fram að málefni fyrirtækisins hafi verið til rannsóknar allt frá árinu 2010. Hið rétta er að umrædd rannsókn hófst með þeirri húsleit sem var sem áður segir gerð hjá Eimskipi og Samskipum 10. september 2013. Á þeim tíma hafði Samkeppniseftirlitið hins vegar haft tiltekna háttsemi á landflutningamarkaði til rannsóknar sem var þá ólokið. Við upphaf rannsóknarinnar 2013 voru tilteknir þættir þess máls sameinaðir hinu nýja máli, enda höfðu eftirlitinu borist ábendingar frá bæði viðskiptavinum og keppinautum Eimskips og Samskipa sem settu málið í nýtt samhengi.

– Á grundvelli kæra Samkeppniseftirlitsins eru ætluð brot nánar tiltekinna stjórnenda fyrirtækjanna til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara, en samkeppnislög gera ráð fyrir að Samkeppniseftirlitið meti hvort ætluð samráðsbrot séu þessu eðlis að þau kalli á að stjórnendur fyrirtækja séu kærðir til lögreglu vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi. Þetta verklag er í samræmi við samkeppnislög þar sem gert er ráð fyrir samvinnu Samkeppniseftirlitsins og lögreglu í málum af þessu tagi.

Fyrir héraðsdómi krafðist Eimskips þess jafnframt að aflétt yrði haldi á gögnum sem Samkeppniseftirlitið lagði hald á við húsleitir hjá fyrirtækinu og afritum þeirra eytt. Til að fyrirbyggja misskilning er rétt að taka fram að afrit var tekið af öllum haldlögðum gögnum strax í kjölfar húsleita og þeim skilað aftur til fyrirtækisins. Ekki er því um það að ræða að fyrirtækið hafi verið svipt aðgangi að umræddum gögnum. Eftir stendur þá fyrir héraðsdóm að leysa úr kröfu Eimskips hvort afritum gagna skuli eytt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun