fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Kristín tætir í sig fjölmiðlafrumvarpið: „Plástralækning sem mun engu skila“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 15. maí 2019 08:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Þorsteinsdóttir, ritstjóri Fréttablaðsins, segir í leiðara dagsins að fjölmiðlafrumvarpið sem Lilja Alfreðsdóttir menningar- og menntamálaráðherra hefur kynnt, muni engu breyta fyrir stærstu fjölmiðla landsins:

„Að halda slíku fram er fjarstæða. Ætlað framlag ráðherrans til einkamiðla í landinu nær því varla að vera 5% þeirrar forgjafar sem RÚV nýtur á ári hverju. Er ekki eitthvað bogið við það?“

Hvorki fugl né fiskur

Lilja sagði um helgina að frumvarpið væri fullklárað og markmiðið væri að styrkja rekstrarumhverfi fjölmiðla, en Kristín vill meina að það sé hvorki fugl né fiskur:

„Staðreyndin er sú að frumvarpið mun engin áhrif hafa á starfsemi á þessum markaði önnur en þau að hvetja til stofnunar örmiðla. Þar hefur hins vegar verið mikil gróska undanfarin ár, og ekkert sem bendir til þess að ríkisaðstoð þurfi til að hjálpa enn frekar til.

Ráðherra gagnrýndi skrif Fréttablaðsins um frumvarpið á þessum vettvangi í fyrrnefndu viðtali og vísaði allri gagnrýni á bug. Þrátt fyrir að ráðherra óskaði umsagna hagsmunaaðila, sem lögð var mikil vinna í, voru þær umsagnir hundsaðar. Frum­varpið er því sem fyrr „hvorki fugl né fisk­ur“ og samráð við hagsmunaaðila var til málamynda.“

Óskiljanlegur samanburður

Lilja nefndi að færa ætti fjölmiðlaumhverfið hér á landi nær því sem norðurlöndin státuðu af:

„Þessi setning er óskiljanleg. Ráðherra hlýtur að vita líkt og við hin, að á Norðurlöndum eru ríkisfjölmiðlar ekki á auglýsingamarkaði? Hlutverk stjórnmálamanna hlýtur að vera að velta fyrir sér hlutverki ríkisfjölmiðils á 21. öldinni, og sníða miðlinum þann stakk að einkamiðlarnir fái að vaxa og dafna í friði fyrir ríkisvaldinu,“

segir Kristín og nefnir að litið sé framhjá hinu augljósa vandamáli, sem sé staða RÚV á auglýsingamarkaði:

„Rekstrarumhverfi einkamiðla verður ekki lagað án þess að tekið sé á yfirburðastöðu RÚV. Ráðherrann skilar einfaldlega auðu. Óljós fyrirheit um endurskoðun á hlutverki RÚV í greinargerð með frumvarpinu eru þar í besta falli til málamynda. Hin vandræðalega staðreynd er sú að ráðherrann hefur eytt stórum hluta af embættistíma sínum í að smíða frumvarp þar sem ekki er ráðist að rót vandans.“

Einkamiðlar fái milljarð

Kristín viðrar hugmyndir sínar um hvernig bæta mætti stöðu einkamiðla:

„Til að mynda mætti byrja á því að veita einum milljarði af útvarpsgjaldinu til einkamiðlanna. Þá yrði þátttaka RÚV á auglýsingamarkaði takmörkuð við einn milljarð á ári. Það væri skref í rétta átt.“

Þá segir hún frumvarp Lilju muni engu skila:

„Einu fjölmiðlarnir á Íslandi sem keppa við RÚV af einhverju afli eru Fréttablaðið, Sýn og Morgunblaðið. Ráðherrann blekkir þjóðina, þegar hún heldur því fram að 50 milljónir jafni leik við RÚV sem fær 4,7 milljarða árlega beint frá skattborgurum, að viðbættum þeim 2,3 milljörðum sem stofnunin sækir árlega á auglýsingamarkaði. Meint björgunaraðgerð Lilju er bútasaumur. Plástralækning sem mun engu skila.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun