fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Þorsteinn um leynilegan Brexit-stuðning Íslands – „Eru það umtalsverð pólitísk tíðindi“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 13. maí 2019 14:00

Þorsteinn Pálsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hafi Katrín Jakobsdóttir í raun og veru gengið lengra en Donald Trump í þessu efni eru það umtalsverð pólitísk tíðindi. Ef það er satt og rétt þarf einnig að skýra út hvers vegna ríkisstjórnin hefur gengið svo langt sem breski ráðherrann fullyrðir í stuðningi við aðgerðir sem ganga jafn harkalega á móti íslenskum hagsmunum? Vonandi var breski ráðherrann þó að skrökva. Ríkisstjórnin þarf þá að segja það. Í öllum venjulegum samskiptum þjóða hefðu ummæli af þessu tagi verið talin vanvirðing, jafnvel dónaskapur, í ljósi þess mikla skaða sem Brexit veldur Íslendingum,“

Svo ritar Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, í pistli á Hringbraut, vegna ummæla Liam Fox, alþjóðaviðskiptamálaráðherra Bretlands, sem sagði við Stöð 2 á föstudag að Ísland hefði verið þjóða duglegust að styðja við Brexit:

 „Þetta er ein af þeim ríkisstjórnum sem hafa sýnt hvað mestan stuðning og hefur auðvitað komist að gagnkvæmu samkomulagi ef við göngum úr Evrópusambandinu án samnings.“

Þorsteinn segir það undarlegt að slíkur samningur sé studdur svo mikið, þar sem hann gangi þvert gegn hagsmunum Íslands. Einnig, að sá stuðningur hljóti að hafa farið leynt.

Þögn fram að þriðja orkupakkanum

Þorsteinn nefnir að sumir hafi verið duglegir að að lýsa yfir ágæti samningsins um innri markað Evrópusambandsins, en þó aðeins eftir að þeir hafi þurft að berjast fyrir innleiðingu þriðja orkupakkans:

„Það er að vísu svo að ráðherrar í núverandi ríkisstjórn heyrðust ekki nefna aðild landsins að innri markaði Evrópusambandsins fyrr en nú fyrir nokkrum vikum. Fram að því fullyrtu þeir að Brexit væri stórkostlegt tækifæri fyrir Ísland. Eftir að ríkisstjórnin lenti í andófi í eigin röðum með þriðja orkupakkann hafa utanríkisráðherra, ráðherra orkumála og formaður utanríkisnefndar Alþingis hins vegar notað hvert tækifæri sem gefist hefur til þess að lýsa því réttilega að enginn samningur hafi reynst Íslandi jafn hagstæður og gæfuríkur og samningurinn um innri markað Evrópusambandsins. Aðrir ráðherrar hafa ekki haft hátt um þá staðreynd.“

Gengur gegn hagsmunum Íslands

Þorsteinn nefnir einnig að neikvæð áhrif Brexit verði áþreifanleg hér á landi, þar sem eftir sé að semja um fjölmörg atriði:

„Svo umfangsmikil hafa viðskiptin við Breta verið að neikvæð áhrif Brexit eru sennilega meiri hér en í flestum öðrum löndum innri markaðar Evrópusambandsins ef Írland er frátalið. Þeir bráðabirgðasamningar sem gerðir hafa verið við bresku ríkisstjórnina bæta aðeins að hluta það tjón sem Ísland verður fyrir þegar Brexit verður að veruleika.“

Tækifærin óljós

Þorsteinn segir einnig að þessi mikli stuðningur við Brexit hafi farið býsna leynt, sem og hver hin fjölmörgu tækifæri séu fyrir Ísland, sem felist í Brexit:

„Þetta er athyglisvert í því ljósi að forseti Bandaríkjanna hefur ekki legið á liði sínu í stuðningi við Brexit og  jafnvel gagnrýnt forsætisráðherra Breta fyrir lina framgöngu í því efni. En breski ráðherrann fullyrðir að ríkisstjórn Íslands hafa gengið lengra.

En hafi breski ráðherrann sagt satt þarf ríkisstjórnin að svara í hverju þessi einstaki og mikli stuðningur, sem slær Trump út, hefur komið fram. Það hefur farið leynt til þessa; nema talið, sem nú er hljóðnað, um miklu tækifærin sem ekki hafa komið í ljós enn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins