fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Eyjan

Ragnar Þór um Gylfa Arnbjörnsson: „Dapurlegt að þurfa að bíða fram í október eftir að nýr forseti verði kjörinn“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 6. júní 2018 10:22

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, spyr á hvaða vegferð ASÍ sé með auglýsingu sem hann segir í „öskrandi mótsögn við raunveruleikann.“ Deilir Ragnar Þór myndbandi frá ASÍ,sem ber heitið Krónur eða kaupmáttur. Þar er sagt að á „ólgu og átakaárunum“ hafi laun hækkað um 55% en lítið hafi komið út úr því annað en „slagsmál og kollsteypur,“ þar sem hækkanirnar hafi horfið í „vaxtaokur“ og „verðbólgubál“. Síðan þá hafi kaupmáttur aukist um 85%, þrátt fyrir minni launahækkanir.

Við þetta er Ragnar Þór ósáttur:

„Að halda því fram að launahækkanir og barátta þeirra sem á undan voru hafi litlu sem engu skilað er ekki bara rangt í sögulegu samhengi heldur líka siðlaust og sýnir fordæmalausan hroka og yfirlæti gegn þrotlausri baráttu hreyfingarinnar fyrir bættum lífskjörum á árunum fyrir þjóðarsátt. Það þarf ekki að kafa djúpt í söguna til að sjá hvernig verkalýðshreyfingin þurfti að takast á við gengisfellingar og elta þannig mikla verðbólgu en ekki öfugt.“

 

Þá segir Ragnar að boðskapurinn fari illa í félagsmenn sína og að Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sólundi sjóðum félagsmanna í áróður gegn þeim sjálfum:

„Á meðan herferðin er augljóslega ætluð gegn nýju fólki innan okkar raða sem hafnar aðferðarfræði síðustu ára og áratuga ,og boðar róttækari verkalýðsbaráttu og hvassari orðræðu, er yfirskriftin sterkari saman eins mikil öfugmæli og hugsast getur þar sem boðskapur ASÍ fer vægast sagt illa í okkar félagsmenn. Það sem er enn dapurlegra er að herferðin gæti verið skrifuð af viðsemjendum okkar sem sitja sjálfsagt skellihlæjandi með hendur í skauti á meðan forseti ASÍ sólundar sjóðum félagsmanna sinna í áróður gegn eigin fólki.“

 

Þá virðist Ragnar ekki geta beðið eftir að fá nýjan forseta ASÍ, í október:

„Formenn stærstu stéttarfélaga og landssambanda innan ASÍ hafa nær allir hvatt forseta ASÍ til að láta af þessum áróðri sem hann sniðgengur og bætir frekar í.

Það er dapurlegt að þurfa að bíða fram í október eftir að nýr forseti verði kjörinn á þingi sambandsins.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kristrún Frostadóttir: Erum í stöðugri aðlögun að regluverki ESB í gegnum EES

Kristrún Frostadóttir: Erum í stöðugri aðlögun að regluverki ESB í gegnum EES
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík