fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Segir Seðlabankann liggja undir gífurlega alvarlegum ásökunum í Samherjamálinu

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 30. mars 2017 22:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson og Björn Valur Gíslason hjá Birni Inga í Eyjuþætti vikunnar á ÍNN sjónvarpsstöðinni.

Brynjar Níelsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksin og Björn Valur Gíslason fyrrum þingmaður og núverandi varaformaður Vinstri grænna voru gestir hjá Birni Inga Hrafnssyni í þættinum Eyjan í kvöld. Brynjar er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis en Björn Valur á í dag sæti í bankaráði Seðlabanka Íslands.

Í samtali við þá tvo rifjaði Björn Ingi upp að Már Guðmundsson seðalbankastjóri hefði verið gestur í þættinum fyrir viku.

Björn Ingi benti á að fram komið væri fram að bankaráð Seðlabankans hefði sett ofan í við Má fyrir að hann færi í ítrekuð viðtöl á Eyjunni og ræddi þar mál sem væru í gangi. Björn Ingi spurði nafna sinn Björn Val bankaráðsmann í Seðlabankanum af hverju bankaráðið hefði átalið seðlabankastjóra.

Ég ætla ekki að ræða það sem við gerum í bankaráði umfram þetta sem hefur komið fram þ. e. a. s. þetta gagn er komið þarna fram. Ég held að ástæðan hafi bara verið sú að það sé ekki gott, hvorki fyrir starfsmenn bankans, bankaráð eða stjórnendur að vera að ræða málefni einstakra aðila, hvort sem það eru einstaklingar eða fyrirtæki. Ég held það sé bara ágætt fyrir banka af þessu tagi, þ. e. a. s. Seðlabanka Íslands í þessu tilfelli, að sleppa því. Ég ætla nú að gera það hérna…Það getur ýmislegt verið sagt í hita leiksins sem kann að hafa áhrif á mál frá báðum hliðum og menn misskilja og mistúlka og geta haft sínar skoðanir á því hvar sem er,

svaraði Björn Valur.

Hér var strax komið inn á mál Gjaldeyriseftirlits Seðlabankans sem sakað hefði sjávarútvegsfyrirtækið Samherja um mikil brot á gjaldeyrislögum. Björn Ingi benti á að í þeim málatilbúnaði Gjaldeyriseftirlitsins hefði hátt verið reitt til höggs en eftirtekjan rýr. Þar hefðu verið ásakanir uppi um gífurlega umfangsmikil brot en það eina sem hefði komið út úr því þegar upp var staðið væri stjórnvaldssekt sem hefði verið véfengd og mál vegna hennar nú fyrir dómstólum. Björn Valur svaraði:

Já, já. Þetta er stórt fyrirtæki sem þarna um ræðir. Eitt af stærstu fyrirtækjum landsins og gríðarlega umfangsmikið með starfsemi víða um heim. Jú, það má auðvitað segja það þegar eftirtekjan er sú að það er beitt stjórnvaldssekt upp á nokkrar milljónir, þá hafi málið allavega ekki endað með þeim hætti sem lagt var af stað með.

Björn Ingi benti þá á að Brynjar Níelsson hefði oft rætt þá á undanförnum árum að laganna verðir, dómstólar og saksóknarar megi heldur ekki ganga of geist fram. Samherjamálið væri kannski ágætt dæmi um það. Miklar ásakanir hefðu verið settar fram á sínum tíma í Kastljóssþætti RUV um þetta mál, þannig að þjóðin hélt að gífurlega umfangsmikil svik væru þarna á ferðinni.

Brynjar sagði að hann væri nánast vanhæfur að ræða þetta tiltekna mál þar sem hann hefði starfað sem lögmaður fyrir einn af þeim mönnum sem voru sakaðir um afbrot í Samherjamálinu. Hann sagði þó:

Það sem kannski er alvarlegi hlutinn er það að í raun og veru er Seðlabankinn sakaður um það að hafa brotið reglur og lög, meira að segja sem gæti varðað refsingum. Þegar slíkar ásakanir eru uppi þá eru þær mjög alvarlegar. Menn hafa komið með gögn og menn hafa óskað eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði það hvort að stjórnsýsla bankans í þessu sem er fengið mikið vald, og eins og við vitum er vald vandmeðfarið og menn þurfa að gæta meðalhófs og allt það. Menn sem hafa orðið fyrir þessu segja að hér hafi bankinn brotið allar reglur sem um getur, bæði í hegningarlögum og í stjórnsýslulögum. Þetta eru gífurlega alvarlegar ásakanir. Einhver gæti hafa sagt: „Heyrðu þetta þarf að skoða betur.“

Hér fyrir neðan má sjá þann hluta Eyjuþáttarins á ÍNN þar sem Brynjar og Björn Valur voru gestir: 

https://vimeo.com/210814424/bf10d52629

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki