fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Eyjan

Trump verst ásökunum um kynferðislega áreitni á Twitter

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 12. desember 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Trump er hrifinn af Twitter-Samsett mynd

Donald Trump Bandaríkjaforseti, sagði í dag að allur sá fjöldi ásakana á hendur honum varðandi kynferðislega áreitni, væri liður í samsæri Demókrata og kallaði þær falsfréttir. Orð Trump féllu degi eftir að þrjár konur ásökuðu Trump um að hafa áreitt sig kynferðislega í viðtali á NBC sjónvarpsstöðinni og á blaðamannafundi í New York í gær.
Konurnar, Jessica Leeds, Samantha Holvey og Rachel Crooks, hvöttu Bandaríkjaþing til að rannsaka hegðun Trump, en fræg eru ummæli hans um hvernig hann gripi í klof kvenna, sem komu fram í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar.

Í kjölfar blaðamannafundar kvennana þriggja, skoraði Kristen Gillibrand öldungardeildarþingmaður, á Trump að segja af sér vegna ásakananna. Undir kvöld í gær, höfðu um 60 konur í lögfræðistétt, skorað á Trump að gera slíkt hið sama.
Í dag notaði Trump síðan tækifærið á Twitter til að lítillækka Gillibrand, sagði hana í „léttvigt“ sem öldungardeildarþingmann og sagði hana einnig hafa grátbeðið sig um styrki fyrir kosningabaráttu sína ekki alls fyrir löngu og hefði verið til í að gera hvað sem er til að fá þá.

Gillibrand svaraði Trump á Twitter, sagði hann ekki geta þaggað niður í sér „eða þeim milljónum kvenna sem hafa komið fram og tjáð sig um vanhæfi þína og skömmina sem þú hefur leitt yfir Hvíta húsið.“
Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, Sarah Sanders, hefur líka farið mikinn í málinu. Hún neitaði ásökununum á hendur forsetanum og lét hafa eftir sér að forsetinn hefði sjálfur „vitneskju um hvað hann gerði, eða gerði ekki“ frá fyrstu hendi. Þá lofaði hún að birta lista yfir sjónarvotta, hvers framburður myndi hreinsa forsetann af öllum ásökunum. Listinn hefur ekki komið fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum