fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Eyjan

Átak í uppbyggingu innviða

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 11. nóvember 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgvin G. Sigurðsson ritstjóri Suðra.

Björgvin G. Sigurðsson skrifar: Alþingiskosningarnar í lok október skiluðu vissulega fleiri þingflokkum en nokkru sinni fyrr og auknum óstöðugleika á stjórnmálasviðinu. Hinsvegar var samhljómur með flokkunum um margt. Stórum átakamálum skyldi vikið til hliðar og forgangsraðar í þágu uppbyggingar innviða samfélagsins. Aukinni samneyslu og velferð.

Allir lofuðu flokkarnir miklum og auknum fjármunum til heilbrigðis- og menntamála. Þeir sem mest fóru munu aldrei geta staðið við stóru orðin en áherslurnar voru meira og minna þær sömu á þessum sviðum. Mikill meirihluti landsmanna kallar eftir betra og þéttara velferðarneti, sérstaklega á sviði heilbrigðismála og bættum hag þeirra sem lifa á lífeyri.

Í þessu samhengi er mikilvægt að endurskipuleggja hlutverk heilbrigðisstofnana hringinn í kringum landið. Fá þeim aukin og skýr hlutverk í heilbrigðisþjónustunni og tryggja þeim fjármuni til þess að rækja það hluverk. Eftir því sem heilbrigðisþjónustan er öflugri heima í héraði er álaginu á kerfið jafnað, þjónustan bætt og færð nær íbúum landsins.

Því er það skynsamleg afstaða að setja stærstu ágreiningsefni stjórnmálanna til hliðar um skeið og mynda stjórn um stóru málin. Uppbyggingu almannaþjónustu sem svarar kröfum og kalli tímans. Þetta á ekki síst við vegna aukins þrýstings á vegi og velferðarkerfi landsins vegna aukins ferðamannafjölda.

Stjórnvöld og ný ríkisstjórn þurfa að styðja duglega við ferðaþjónustuna á næstu misserum. Vaxtaverkir einkenna nú greinina eftir fádæma uppbyggingu á fáum árum. Nú þarf að leggja þessari stærstu og verðmætustu atvinnugrein landsins lið við að finna jafnvægi og stöðugleika. Það er meðal annars gert með átaki í samgöngu- og vegamálum sem skilar bæði ferðafólki og erlendum gestum, sem og okkur sem hér búum, auknu öryggi á vegum úti.

Mesta öryggismálið er breikkun og tvöföldun fjölfarinna vega. Aðskilnaður akreina skiptir mestu máli. Einungis þannig má svo gott sem útrýma alvarlegum umferðarslysum á þyngstu vegunum, sem ná nú frá Reykjavíkursvæðinu vestur í Borgarfjörð og austur í Mýrdal.

Birtist fyrst í Suðri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB