fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Eyjan

Benedikt biðst afsökunar: „Þetta voru kjánaleg ummæli“

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 7. febrúar 2017 16:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar. Mynd/Sigtryggur Ari

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra  og formaður Viðreisnar biðst afsökunar á ummælum sem hann lét falla í ræðustól Alþingis þar sem hann vísaði til þingkvenna sem „hagsýnna húsmæðra“ við umræður um verklag við opinber fjármál. Ummælin vöktu hörð viðbrögð og gagnrýndi Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður Vinstri grænna Benedikt fyrir ummælin við upphaf þingfundar í dag. Spurði Bjarkey hvort sambærileg ummæli hefðu verið látin falla ef meirihluti þingmanna hefði verið karlar. Sagði hún að orðanotkun skipti máli og þessi ummæli væru ekki í lagi, undir það tóku nokkrir aðrir þingmenn. Benedikt segir á Fésbókarsíðu sinni ummælin kjánaleg og biðst hann afsökunar á þeim:

Í ræðustól Alþingis vísaði ég til þingkvenna sem hagsýnna húsmæðra. Það var tilraun til þess að gefa hnyttið andsvar við fyrri ræðu, en hún heppnaðist afleitlega. Um leið og ég heyrði mig segja þetta hugsaði ég: „Þú ert nú ekki alltaf jafn orðheppinn Benedikt.“

Þetta voru kjánaleg ummæli og ég biðst afsökunar á þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Galdramenn ganga aftur

Óttar Guðmundsson skrifar: Galdramenn ganga aftur
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“