

Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarna daga hefur töluverður sjógangur verið víða á landinu undanfarna daga vegna illviðris og stórstreymis. Tjón hefur orðið á mannvirkjum og fleiru sem staðið hefur nærri sjó, einna helst á Suðurnesjum, Höfuðborgarsvæðinu og Akranesi en hæst bar að maður sem lenti í sjónum á síðastnefnda staðnum, eftir mikinn öldugang, liggur á gjörgæsludeild. Mikið tjón varð á atvinnuhúsnæði við Fiskislóð á Granda í Reykjavík og sömuleiðis varð mikið tjón á munum innanhúss. Jón Viðar Jónsson, hinn landsþekkti leiklistargagnrýnandi og rithöfundur, bendir í færslu á Facebook á áhugaverða staðreynd um þessi hús úti á Granda:
„Ég geng stundum sjóvarnargarðinn í átt að Örfirisey þar sem Ægir kóngur og dætur hans léku lausum hala í gær og ollu tjóni (ekki aðeins fjárhagslegu) sem við höfum séð í fréttum. Auðvitað hef ég og allir aðrir einlæga samúð með því fólki sem horfir upp á starf sitt til margra ára eyðilagt en fær það vonandi bætt af tryggingum. En mér er fullkomlega óskiljanlegt hvernig þeim sem teiknuðu þessi hús og reistu þau datt í hug að setja GLERVEGGI á alla hliðina sem snýr út að sjónum. Enn eitt dæmi þess að við höfum gleymt hvaða landi við búum í?“
Þór Saari fyrrverandi Alþingismaður bendir í athugasemd á líklega skýringu á því hvers vegna húsin voru byggð svona:
„Gler sem veggir er ódýrara en steypa. Ekki flókið. Verktakaræðið er alls staðar.“
Jón Viðar viðurkennir það með sínum hætti að þetta hefði hann ekki hugsað út í:
„Já, ekki datt mér það í hug – sjálfsagt of andlega þenkjandi svona almennt.“