fbpx
Þriðjudagur 04.nóvember 2025
Eyjan

Logi leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 26. október 2024 13:09

Logi Einarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í morgun. Fundurinn var haldinn í Samfylkingarsalnum á Akureyri.
Logi Einarsson, alþingismaður og formaður þingflokks Samfylkingarinnar, leiðir listann í Norðausturkjördæmi. Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, og fjórða sætið skipar Sindri Kristjánsson lögfræðingur.

Í heiðurssætinu er Ólafur Ármannsson, framkvæmdastjóri bílaverkstæðisins Bílar og vélar á Vopnafirði.

Logi: Við erum tilbúin til þjónustu

„Við í Samfylkingu höldum full sjálfstrausts í kosningabaráttuna. Við erum tilbúin til þjónustu, fáum við til þess traust í kosningunum, eftir markvissa vinnu síðustu tvö árin undir styrkri forystu Kristrúnar Frostadóttur formanns.

Liður í því eru vel á annað hundrað opnir fundir um land allt þar sem við höfum rætt við fólkið í landinu um þau mál sem mestu skipta í daglegu lífi. Hvernig við getum passað upp á efnahagsmálin, heilbrigðis og skólamálin, atvinnu og samgöngur, húsnæði og lífskjör fólks frá degi til dags. Þarna hefur fráfarandi ríkisstjórn algjörlega brugðist, því miður, en við í Samfylkingu bjóðum trausta forystu um breytingar,” segir Logi Einarsson að loknum fundi kjördæmisráðsins á Akureyri.

„Þetta er fjölbreyttur hópur frambjóðenda og við hlökkum til að leggja í hann og að hitta fólk sem víðast í þessu stóra og fallega kjördæmi. Það er sannfæring mín að mjög margt fólk vilji sjá breytingar í þágu almennings eftir kosningar og sé tilbúið í nýtt upphaf undir forystu Kristrúnar Frostadóttur.”

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi:
1. Logi Einarsson, alþingismaður
2. Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari VA
3. Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur RHA
4. Sindri Kristjánsson, lögfræðingur
5. Stefán Þór Eysteinsson, fagstjóri hjá Matís í Neskaupstað
6. Kristín Helga Schiöth, framkvæmdastjóri
7. Ásdís Helga Jóhannsdóttir, sérfræðingur hjá Afli
8. Jóhannes Óli Sveinsson, stuðningsfulltrúi
9. Eva María Ingvadóttir, aðjúnkt við HA
10. Benóný Valur Jakobsson, verslunarmaður
11. Valborg Ösp Á. Warén, verkefnastjóri
12. Nói Björnsson, formaður íþróttafélagsins Þórs á Akureyri
13. Elsa María Guðmundsdóttir, grunnskólakennari
14. Birkir Snær Guðjónsson, hafnarvörður
15. Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri
16. Reynir Ingi Reinhardsson, lögfræðingur
17. Áslaug Inga Barðadóttir, framkvæmdastjóri
18. Árni Gunnarsson, bóndi í Sveinungsvík
19. Svanfríður Jónasdóttir, fv. bæjarstjóri og alþingismaður
20. Ólafur Ármannsson, framkvæmdastjóri

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Reynir Traustason: Tók bara utan um stefnuvottinn og þakkaði honum fyrir að koma með bréfið

Reynir Traustason: Tók bara utan um stefnuvottinn og þakkaði honum fyrir að koma með bréfið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Nýir lánaskilmálar í kjölfar hæstaréttardóms stórkostlegt tækifæri fyrir Seðlabankann

Nýir lánaskilmálar í kjölfar hæstaréttardóms stórkostlegt tækifæri fyrir Seðlabankann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Hver er merkasti forsætisráðherra aldarinnar?

Björn Jón skrifar: Hver er merkasti forsætisráðherra aldarinnar?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Leiðtogar fylkinga Sjálfstæðisflokksins yfirbjóða hvor annan í stóryrðum vegna bensínlóðamála

Orðið á götunni: Leiðtogar fylkinga Sjálfstæðisflokksins yfirbjóða hvor annan í stóryrðum vegna bensínlóðamála
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þrjár leiðir til að gæta íslenskra hagsmuna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þrjár leiðir til að gæta íslenskra hagsmuna
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Orðið á götunni: Enn bullar Binni blanki – verður að líta í eigin barm

Orðið á götunni: Enn bullar Binni blanki – verður að líta í eigin barm
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Benedikt Gíslason: Gott tækifæri til að losa heimilin við verðtrygginguna

Benedikt Gíslason: Gott tækifæri til að losa heimilin við verðtrygginguna