fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
433Sport

Albert Guðmundsson sýknaður

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 10. október 2024 12:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómur var kveðinn upp yfir Alberti Guðmundssyni, atvinnumanni í knattspyrnu, við Héraðsdóm Reykjavíkur, laust fyrir kl. 13 í dag.

Albert var ákærður fyrir nauðgun með því að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu, án hennar samþykkis og að hafa beitt hana nauðung við kynferðislega athöfn sem ekki var nánar tilgreind í nafnhreinsaðri ákæru héraðssaksóknara. Atvikið átti sér stað sumarið 2023 og brotaþoli kærði Albert til lögreglu.

Lögregla sendi málið til héraðssaksóknara að lokinni rannsókn en embættið felldi málið niður. Sú ákvörðun var kærð til ríkissaksóknara sem gerði héraðssaksóknara að ákæra í málinu.

Þinghald í máli Alberts var lokað en Albert var sjálfur fjarstaddur, á Ítalíu, en þar leikur hann með úrvalsdeildarliðinu Fiorentina. Þar sem þinghald var lokað var dómurinn kveðinn upp fyrir luktum dyrum.

Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur var að Albert er sýknaður. Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kvað upp dóminn.

Sjá einnig: Hareide efins um það hvort hann geti kallað Albert inn í hópinn núna – „Það er kannski ómögulegt“

Saksóknari í málinu, Arnþrúður Þórarinsdóttir, vildi ekki tjá sig um dóminn er DV hafði samband við hana. Það er ríkisssaksóknari sem tekur ákvörðun um hvort máli er áfrýjað til Landsréttar og gat Arnþrúður því ekki tjáð sig neitt um það. Hún vildi ekki svara því hvort dómurinn hefði komið henni á óvart en sagðist núna fara í að kynna sér forsendur hans.

Arnþrúður upplýsti DV jafnframt um það að dómurinn verður birtur um kl. 16 í dag. DV mun þá greina frá efni hans.

Verjandi fagnar

Verjandi Alberts Guðmundssonar, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, segir í samtali við Vísir.is, að niðurstaðan sé lögfræðilega rétt. „Þetta er ítarlegur og vel rökstuddur dómur, Við fögnum þessari niðurstöðu,“ segir Vilhjálmur.

Vilhjálmur segir að rökstuðningur dómsins sé yfir tuttugu blaðsíður. Þar komi fram að framburður Alberts hafi verið trúverðugur.

Vilhjálmur segist efast um að ríkissaksóknari áfrýji niðurstöðunni til Landsréttar, miðað við rökstuðning dómsins.

Brotaþoli hafi sýnt styrk

Eva B. Helgadóttir, lögmaður konunnar sem kærði Albert, segir í samtali við Vísir.is að niðurstaða dómsins „breyti engu um upplifun brotaþola af þessu kvöldi eða af samskiptum við ákærða.“

Hún segir að erfitt sé fyrir brotaþola að fara hina lögformlegu leið og ennfremur: „Mér finnst brotaþoli hafa sýnt styrk.“

Eva bendir jafnframt á að það væri í takt við ákvörðun ríkissaksóknara um að ákæra skyldi í málinu ef tekin yrði ákvörðun um að áfrýja málinu til Landsréttar, en eins og áður segir liggur sú ákvörðun hjá ríkissaksóknara.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Staðfesta komu Pogba

Staðfesta komu Pogba
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fær skrefið til Sádi eftir fall í næst efstu deild

Fær skrefið til Sádi eftir fall í næst efstu deild
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Semur mjög óvænt við Liverpool

Semur mjög óvænt við Liverpool
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fyrirgefur stórstjörnunni sem byrjaði að fylgja honum á Instagram – ,,Þetta særði mig ef ég er hreinskilinn“

Fyrirgefur stórstjörnunni sem byrjaði að fylgja honum á Instagram – ,,Þetta særði mig ef ég er hreinskilinn“