fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Grímur furðar sig á íslensku lífeyrissjóðunum – Mikill munur á Íslandi og Danmörku

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 9. september 2024 19:30

Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, furðar sig á fjárfestingarstefnu íslenskra lífeyrissjóða. Í Danmörku fjárfesta lífeyrissjóðir í óhagnaðardrifnum leiguíbúðum og búa til heilbrigt leiguumhverfi en á Íslandi fjárfesta þeir í gróðafyrirtækjum sem eyðileggja húsnæðismarkaðinn.

Grímur segir þetta í færslu á samfélagsmiðlum. Innblásturinn var gönguferð í gær fram hjá gamla vinnustaðnum sínum í Kaupmannahöfn, Hørsholmsgade 20. En þar vann hann fyrir 25 árum.

„Ég bjó á þeim tíma íbúð í Roskilde sem ég leigði af lífeyrissjóðnum mínum (lífeyrissjóður starfsmanna í félags- og heilbrigðisgeiranum). Leigan var afar sanngjörn og kerfið tryggt og stærð íbúðar miðaðist við fjölskyldustærð,“ segir Grímur í færslunni. „Lífeyrissjóðurinn minn eins og margir fleiri lífeyrissjóðir í Danmörku fjárfesti á félagslegum og samfélagslegum grunni í bland við aðrar fjárfestingar sem eiga að vernda lífeyri minn og annarra sjóðfélaga.“

Þegar Grímur leit inn á heimasíðuna í dag og sá að nýbyggðar íbúðir í leigu hjá þessum lífeyrissjóði, 46 til 165 fermetrar að stærð og kosta frá 90 þúsund krónum, það er 4500 dönskum krónum.

„Raunávöxtun sjóðsins sl. 10 ár var 5,9% þrátt fyrir fjárfestingarstefnu sem setur samfélagslegar kröfur sem m.a. hefur orðið til þess að sjóðurinn á rúmlega 10.000 leiguíbúðir í Danmörku. Raunávöxtun í Lífeyrissjóði verzlunarmanna var 4,8% fyrir sama tímabil,“ segir Grímur. „Fjárfestingarstefna sjóðsins í Danmörku er bundin í samfélagslegum verkefnum á meðan LV, eins og aðrir íslenskir lífeyrissjóðir, er fastur í íslensku krónuhagkerfi og nær engum lagalegum skyldum gagnvart samfélaginu.“

Þá nefnir hann að í Danmörku eigi óhagnaðardrifin leigufélög 595 þúsund íbúðir, eða 21 prósent af heildarfjölda íbúða. Hagnaðardrifin leigufélög og einstaklingar eigi samanlagt 682 þúsund, eða rúmlega 23 þúsund. Leigumarkaðurinn allur er 44 prósent íbúða í Danmörku en aðeins 21 prósent á Íslandi. Hér á landi er minnihlutinn í eigu óhagnaðardrifinna leigufélaga.

„Leigumarkaðurinn á Íslandi er markaður ófyrirsjáanleikans og óöryggis,“ segir Grímur. „Það er mér algjörlega óskiljanlegt að á sama tíma og lífeyrissjóðurinn minn í Danmörku fjárfesti í u.þ.b. 100 til 200 nýjum íbúðum á ári til að setja í óhagnaðardrifið leigufélag sitt, sjóðfélögum til góða, þá fjárfesti lífeyrissjóðurinn minn á Íslandi í félögum eins og Gamma sem gerðu ekkert annað en að eyðileggja húsnæðismarkaðinn og hrun Gamma hafði einnig áhrif á ávöxtun lífeyris sjóðfélaganna.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir