fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
Fréttir

Bát hvolfdi í Hvalfirði

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 12. ágúst 2024 21:21

Aðgerðin er umfangsmikil að sögn Landsbjargar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna tilkynningar um að bát hefði hvolft í Hvalfirði. Einnig lögregla, sjóbjörgunarsveitir og áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

„Vegfarendur sögðu bátinn vera um 300 metra frá landi og sáu mann á kili bátsins,“ segir í tilkynningunni. „Björgunarsveitir frá Akranesi, Kjalarnesi og Reykjavík héldu á staðinn og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var ræst út á mesta forgangi.“

Þegar björgunarfólk kom á staðinn hafði manninum tekist að komast um borð af sjálfsdáðum. Hann var hins vegar blautur og kaldur og hlúðu viðbragðsaðilar að honum. Eftir það var hann fluttur með þyrlu til skoðunar á sjúkrahúsi í Reykjavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fólk hvatt til að fylgjast vel með veðurspám næstu daga

Fólk hvatt til að fylgjast vel með veðurspám næstu daga
Fréttir
Í gær

Fær ekki endurgreitt eftir að kaup á dýrum gluggjatjöldum fóru algjörlega úr skorðum

Fær ekki endurgreitt eftir að kaup á dýrum gluggjatjöldum fóru algjörlega úr skorðum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?