fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
433Sport

Enginn gefið fleiri mörk í Meistaradeildinni en Onana síðustu fimm árin

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 30. nóvember 2023 07:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andre Onana hefur gefið sjö mörk í Meistaradeildinni frá því að hann stóð í markinu hjá Ajax frá árinu 2017.

Onana hefur verið ansi slakur í deild þeirra bestu með United í vetur en hann lék einnig með Inter í þessari keppni.

United var í tvígang með tveggja marka forskot á útivelli gegn Galatasaray í Meistaradeild í Evrópu í gær. Liðinu tókst að missa það niður en Andre Onana var í gjafastuði í marki liðsins.

Alejandro Garnacho kom United yfir með laglegu marki og Bruno Fernandes bætti svo við öðru markinu og United í frábæri stöðu.

Á 29 mínútu braut Bruno heimskulega af sér fyrir utan teig. Hakim Zieych tók aukaspyrnu sem Andre Onana tókst ekki að verja en hann hefði átt að gera.

Í upphafi síðari hálfleiks var komið að Scott McTominay að koma United í 1-3 og staðan vænleg fyrir gestina.

Aftur braut Bruno af sér fyrir utan teig og laflaus aukaspyrna Zieych fór í netið en Onana varði boltann inn í markið. Kerem Akturkoglu jafnaði svo fyrir gestina á 71 mínútu og staðan orðin 3-3.

Bæði lið fengu haug af færum eftir þetta en tókst ekki að skora og 3-3 því niðurstaðan. Galatasaray er með fimm stig í riðlinum en United er á botninum með fjögur stig líkt og FCK.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skoða það að semja við Antonio sem er staðráðinn í að halda áfram

Skoða það að semja við Antonio sem er staðráðinn í að halda áfram
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Kemur Gyokeres til varnar

Kemur Gyokeres til varnar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp
433Sport
Í gær

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu
433Sport
Í gær

Telur að Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool

Telur að Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool
433Sport
Í gær

Vilja losna við Elliott í janúar – Hætta að spila honum svo félagið þurfi ekki að kaupa hann

Vilja losna við Elliott í janúar – Hætta að spila honum svo félagið þurfi ekki að kaupa hann
433Sport
Í gær

Albert svarar fyrir stríðið við Arnar Þór og fræga Twitter færslu Eiðs Smára – „Það var raunin, hann gróf sína eigin gröf og rest in peace“

Albert svarar fyrir stríðið við Arnar Þór og fræga Twitter færslu Eiðs Smára – „Það var raunin, hann gróf sína eigin gröf og rest in peace“