fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Eyjan

Nýtt fólk til þjónustu- og ráðgjafafyrirtækisins Maven – ör vöxtur og uppgangur

Eyjan
Mánudaginn 30. október 2023 10:08

Nýtt starfsfólk Maven. Á myndinni eru: Sigrún Inga Ólafsdóttir, Darri Rafn Hólmarsson og Einar Þór Gunnlaugsson, sem öll eru gagnasérfræðingar, Ragnar Stefánsson, sem er sérfræðingur í gagnavísindum, og Erna Guðrún Stefánsdóttir, sem er nýr mannauðs- og skrifstofustjóri Maven.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maven, þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki í upplýsingatækni, ráðið til sín fimm nýja starfsmenn til að styrkja fyrirtækið í nýjum verkefnum sem fram undan eru. Þetta eru Sigrún Inga ÓlafsdóttirDarri Rafn Hólmarsson og Einar Þór Gunnlaugsson, sem öll eru gagnasérfræðingar, Ragnar Stefánsson, sem er sérfræðingur í gagnavísindum, og Erna Guðrún Stefánsdóttir, sem er nýr mannauðs- og skrifstofustjóri Maven.

Við erum hæstánægð með að geta boðið þennan öfluga hóp af sérfræðingum velkominn til starfa til okkar,“ segir Helgi Hrafn Halldórsson, framkvæmdastjóri Maven. „Stjórnendur og fólk almennt eru farin að gera sér grein fyrir mikilvægi og virði gagna til að mynda í gervigreind og vélnámi (e. Machine learning), þar sem sjálfvirknivæðing og skýjalausnir gera fyrirtækjum kleift að nýta gögn betur án mikillar fjárfestingar eða skuldbindingar. Við sjáum mikla eftirspurn eftir þjónustu okkar, sem felst einna helst í því að hjálpa fyrirtækjum af öllum tegundum, stærðum og gerðum að greina og móta gögn þeirra með framsæknum hætti sem skapar virði fyrir þá og þeirra viðskiptavini. Það er okkur því mikils virði að fá þetta reynslumikla fólk til okkar.“

Sigrún Inga Ólafsdóttir er nýr gagnasérfræðingur hjá Maven. Hún hefur lokið BSc í heilbrigðisverkfræði og BSc í hugbúnaðarverkfræði, hvoru tveggja í Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði áður sem gagnasérfræðingur og verkefnastjóri hjá lyfjafyrirtækinu Medis.

Darri Rafn Hólmarsson er nýr gagnasérfræðingur á starfstöð Maven á Akureyri. Hann hefur lokið BSc gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Darri kemur til Maven frá Advania þar sem hann starfaði m.a. sem ráðgjafi og verkefnisstjóri á sviði viðskiptalausna.

Einar Þór Gunnlaugsson er nýr gagnasérfræðingur með MSc gráðu í upplýsingatæknikerfum (Information Systems) frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð og BSc í viðskiptafræði með áherslu á fjármál frá Háskóla Íslands.  Einar starfaði sem gagnasérfræðingur með áherslu á tækninýjungar og nýtingu gagna í Svíþjóð áður en hann var ráðinn til starfa hjá Maven.

Ragnar Stefánsson er nýr sérfræðingur í gagnavísindum með MSc gráðu í gagnavísindum frá Háskólanum í Reykjavík og BSc gráðu í tölvunarfræði frá sama skóla. Áður en Ragnar kom til Maven starfaði hann, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, fyrir WildLife Studios sem hannar farsímaleiki sem milljónir leikmanna um allan heim spila daglega. Hans hlutverk þar var að búa til spálíkön byggð á hegðunarmynstri notenda.

Erna Guðrún Stefánsdóttir er nýr mannauðs-og skrifstofustjóri hjá Maven með BSc í viðskiptafræði og er að ljúka MSc í mannauðsstjórnun, hvoru tveggja frá Háskólanum á Bifröst. Erna kemur með ríka starfsreynslu frá KPMG þar sem hún hefur komið að alhliða bókhaldi fyrir hin ýmsu félög ásamt því að hafa komið að mannauðsmálum innan bókhaldssviðs félagsins.

Í tilkynningu frá Maven segir að fyrirtækið sé þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni sem hóf rekstur sinn árið 2021. Í dag eru starfstöðvar félagsins tvær, í Reykjavík og Akureyri, auk þess sem það er með starfsfólk í Varsjá og Norður Karólínu. Félagið leggur áherslu á að gera stjórnendum og starfsfólki fyrirtækja kleift að öðlast þekkingu og innsýn á þau gögn sem þau búa yfir. Kjarnaþjónustan felst í því að bjóða fyrirtækjum í ýmsum atvinnugeirum upp á aðkomu gagnasérfræðinga Maven sem skapa þekkingu úr margvíslegum gögnum, m.a. með greiningu og stefnumótun, uppbyggingu gagna- og tækniumhverfa, sjálfvirknivæðingu á verkferlum, samþættingu gagna á milli kerfa og gerð mælaborða fyrir stjórnendur. Stjórnendur fyrirtækja fá þannig betri innsýn inn í reksturinn sem leiðir til betri ákvörðunartöku og aukins virðis. Nánari upplýsingar á maven.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – Þingið afber varla þessa ríkisstjórn

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – Þingið afber varla þessa ríkisstjórn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hlýða Víði í kjörklefanum? – „Maður bara trúir því ekki að nú eigi að misnota Covid og hetjur þess til að auka fylgið“

Hlýða Víði í kjörklefanum? – „Maður bara trúir því ekki að nú eigi að misnota Covid og hetjur þess til að auka fylgið“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilja vita hvert milljarðar borgarbúa fóru

Vilja vita hvert milljarðar borgarbúa fóru
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Næstum 100 milljónir á síðasta ári frá ríkinu til fyrirtækisins sem aðstoðar Katrínu

Næstum 100 milljónir á síðasta ári frá ríkinu til fyrirtækisins sem aðstoðar Katrínu