fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Strákarnir okkar ætla að nota hörmungarnar úti í Lúxemborg til góðs – „Það væri bara vitleysa“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. október 2023 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska karlalandsliðið mætir Lúxemborg á föstudag hér heima í undankeppni EM 2024. Arnór Ingvi Traustason landsliðsmaður segir að liðið ætli að hefna fyrir ófarirnar úti í Lúxemborg í síðasta mánuði.

Leikurinn gegn Lúxemborg er sá fyrri í þessum landsleikjaglugga en sá seinni er gegn Liechtenstein á mánudag. Ísland þarf nauðsynlega á sex stigum að halda úr þessum leikjum ef liðið ætlar að eiga einhvern möguleika á að fara á EM í gegnum undanriðilinn.

video
play-sharp-fill

Ísland tapaði 3-1 gegn Lúxemborg í síðasta mánuði og átti vægast sagt dapran leik.

„Við eigum harma að hefna eftir síðasta leik á móti þeim og ætlum okkur þrjú stig. Við ætlum að sýna að leikurinn úti hafi bara verið smá slys,“ segir Arnór við 433.is.

„Það væri bara vitleysa að fara ekki inn í þennan leik með það hugarfar.“

Arnór segir að leikmenn íslenska liðsins séu í góðum gír og brattir fyrir komandi verkefni.

„Það er alltaf góður andi í landsliðnu og gaman að koma í landsliðið.“

Eins og glöggir hafa tekið eftir er veðrið hér á Íslandi ekki með besta móti í dag. Arnór var spurður út í hvernig það hafi verið að æfa í Laugardalnum í dag.

„Það var öðruvísi en smá frískandi að fá vind í andlitið. Maður er vel veðurbarinn.“

Ítarlega er rætt við Arnór í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik
433Sport
Í gær

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið
Hide picture