fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Neville segir að Liverpool geti ekki keppt við Arsenal og Manchester City út af þessu

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. október 2023 08:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United goðsögnin og sparspekingurinn Gary Neville telur að Liverpool vanti djúpan miðjumann til að geta barist við Arsenal og Manchester City um Englandsmeistaratitilinn allt til enda.

Liverpool hefur farið vel af stað á leiktíðinni og er með 17 stig eftir átta leiki, 3 stigum frá toppliðum Tottenham og Arsenal. City er svo með 18 stig í þriðja sæti.

Neville telur þó að Liverpool og Tottenham haldi ekki í við Arsenal og City, sem börðust um Englandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð.

Hann bendir á að Liverpool sé með marga frábæra menn í mörgum stöðum en það vanti leikmenn eins og Declan Rice hjá Arsenal og Rodri hjá Manchester City.

„Miðja þeirra er sóknarsinnuð. Hefur hún það sem til þarf varnarlega til að gera eins og Arsenal gerði núna gegn City eða þegar Rodri kemur aftur í lið City? Ef þú setur Declan Rice eða Rodri aftastan á miðju Liverpool tel ég að þeir ættu klárlega að geta unnið titilinn,“ segir Neville.

„Ég set spurningarmerki við hvort þeir séu nógu þéttir á miðjunni. Ég held að Liverpool geti ekki orðið meistari en þeir eru með í kapphlaupinu út af stjóra þeirra, sem er stórkostlegur. En ég held að undir lok tímabils verði þetta á milli Arsenal og City.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Í gær

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?
433Sport
Í gær

Dýrmætur sigur gegn Úkraínu

Dýrmætur sigur gegn Úkraínu
433Sport
Í gær

Forsetinn með stórar fullyrðingar í gær um tilboð sem hann hyggst leggja fram – Blaðamaður heldur því fram að þetta sé leikmaðurinn

Forsetinn með stórar fullyrðingar í gær um tilboð sem hann hyggst leggja fram – Blaðamaður heldur því fram að þetta sé leikmaðurinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tottenham staðfestir komu Robertson frítt frá Liverpool

Tottenham staðfestir komu Robertson frítt frá Liverpool
433Sport
Fyrir 2 dögum

Slot sakaður um að hafa sýnt leikmönnum Liverpool mikinn hroka – Þetta á hann að hafa sagt

Slot sakaður um að hafa sýnt leikmönnum Liverpool mikinn hroka – Þetta á hann að hafa sagt