fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Þorbjörg hjólar í Bjarna – „Dýrasti fjármálaráðherra Íslandssögunnar?“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 22. október 2022 15:58

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dýrasti fjármálaráðherra Íslandssögunnar?“ spyr Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni í dag. 

Ástæðan fyrir skrifum Þorbjargar er blaðamannafundur sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hélt síðastliðinn fimmtudag. Á blaðamannafundinum fór Bjarni yfir skýrslu sem sýnir að Íbúðalánasjóður muni verða gjaldþrota innan 12 ára að öllu óbreyttu. Þá kynnti Bjarni hugmynd sem gekk út á að ná samkomulagi við lánardrottna sjóðsins um uppgjör skulda. Hann sagði að það gæti sparað ríkissjóði 150 milljarða króna.

Þorbjörg talar um þennan fund í færslu sinni: „Eftir lokun markaða á fimmtudag hélt fjármálaráðherra blaðamannafund þar sem hann kynnti að Íbúðalánasjóður færi að óbreyttu í þrot eftir 12 ár og þá myndi reyna á ríkisábyrgð. Á sama fundi og rætt var um þetta yfirvofandi gjaldþrot – með ríkisábyrgð – kynnti fjármálaráðherra hugmynd sem gæti „sparað” ríkissjóði gríðarlegar fjárhæðir. Þar mátti þó reyndar líka heyra að væntanlegt fjártjón ríkissjóðs í dag væru um 47 milljarðar. Og gæti orðið meira.“

Þá spyr Þorbjörg hvar sparnaðurinn liggur eiginlega en hún svarar þeirri spurningu svo sjálf. „Hann átti að ná fram með því að ná samkomulagi við lánardrottna Íbúðalánasjóðs um uppgjör skulda. Lánardrottnar eru að stærstum hluta lífeyrissjóðirnir. Með öðrum orðum: almenningur í landinu,“ segir hann.

„Ef þeir vilja ekki semja við fjármálaráðherra á allra næstu vikum ætlar hann að setja lög til að ná fram vilja sínum. Íbúðalánasjóðnum yrði þá í kjölfarið slitið á nýju ári, skuldir látnar gjaldfalla og ríkisábyrgð virkjuð.“

Þorbjörg bendir á að það sé „auðvitað ekki þannig“ að kostnaðurinn hverfi bara. „Í sjálfu sér eru það meistaralegir taktar í skapandi skrifum að gefa ævintýralegu fjártjóni nafnið „sparnað”.“

Hún er þó sammála um að það verði að grípa inn í stöðu þar sem tap getur verið 18 milljarðar á ári, slík staða megi ekki viðgangast lengi án aðgerða stjórnvalda. „Fjármálaráðherra sagði þess vegna bæði mikilvægt og ábyrgt gagnvart komandi kynslóðum og kröfuhöfum að gengið verði til þessa uppgjörs fyrr en seinna. Gríðarlegt fjártjón myndi falla á skattgreiðendur og framtíðarkynslóðir ef ekkert yrði að gert.“

Það sem Þorbjörg veltir þó fyrir sér er hvers vegna Bjarni brást ekki fyrr við þessu. „Viðbragðstími fjármálaráðherra vekur hins vegar athygli ekki síst þegar fyrir liggur að ráðherrann hefur árum saman þekkt þessa stöðu,“ segir hún.

„Þannig lá til dæmis fyrir í apríl 2013 skýrsla um framtíðarhorfur sjóðsins þar sem fjallað var um mikla rekstrarerfiðleika. Fjármálaráðherra hefur einmitt setið í embætti frá 2013. Hann hefur haft tæpan áratug til að draga úr tjóni almennings.“

Í viðtali Morgunblaðins við Bjarna í gær var hann spurður hvort ekki hefði mátt bregðast fyrr við þessari stöðu. Bjarni svaraði því og sagði að hann væri búinn að vera að skoða þessi mál gaumgæfilega frá árinu 2019.

Þetta gagnrýnir Þorbjörg harðlega: „Bara þessi þriggja ára skoðun ráðherrans hefur þá kostað tugi milljarða króna. Það er rándýrt aðgerðaleysi og það er almenningur sem tekur reikninginn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hallgrímur vandar Katrínu ekki kveðjurnar- „Er einhver munur á VG og XD?“

Hallgrímur vandar Katrínu ekki kveðjurnar- „Er einhver munur á VG og XD?“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“