fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Jón Baldvin hundsaður af HÍ og forsetaembættinu – „Ég skil ekki af hverju menn eru svo lítilsigldir“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 24. ágúst 2022 06:02

Jón Baldvin Hannibalsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á föstudaginn fer fram hátíðarsamkoma í hátíðarsal Háskóla Íslands þar sem þriggja áratuga stjórnmálasambandi Íslands og Eystrasaltsríkjanna verður fagnað „eftir að Ísland varð fyrst ríkja til að viðurkenna á ný sjálfstæði Eistlands, Lettlands og Litháens,“ að því er segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrrum utanríkisráðherra, var ekki boðið á samkomuna en hann var utanríkisráðherra þegar Ísland viðurkenndi sjálfstæði ríkjanna.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Forsetar Eystrasaltsríkjanna verða viðstaddir samkomuna auk forseta Íslands og flytja erindi. Það eru Háskóli Íslands og forsetaembættið sem boða til hátíðarsamkomunnar.

Það var á mánudaginn sem Sighvatur Björgvinsson, fyrrum ráðherra og samflokksmaður Jóns Baldvins, komst að því að Jóni var ekki boðið á hátíðarsamkomuna. „Þeir sem hafa undirbúið fundinn hafa vitandi vits haldið Jóni Baldvini frá,“ hefur Fréttablaðið eftir honum.

Sighvatur gerði athugasemd við þetta við forsetaembættið sem sendi þá Jóni boðsbréf, fjórum dögum fyrir samkomuna.

Jón staðfesti að hafa ekki vitað af hátíðarsamkomunni fyrr en hann fékk boðsbréf í tölvupósti seint á mánudaginn. Þar sem hann haldi til á Spáni hafi hann ekki getað þegið boðið með svo skömmum fyrirvara. „Ég skil ekki af hverju menn eru svo lítilsigldir,“ sagði hann.

Nánar er hægt að lesa um málið í Fréttablaðinu í dag.

Uppfært 10:11: Embætti forseta Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins. Þar er því vísað á bug að Jóni Baldvini hafi ekki verið boðið til viðburðarins. Hann hafi, líkt og aðrir ráðherrar ríkisstjórna Íslands á árunum 1988-1995 sem og fyrrverandi sendiherrar og ræðismenn þess tíma, fengið boð á sama degi. Í yfirlýsingu segir: „Auðvelt hefði verið fyrir blaðið að sannreyna þetta með einu símtali. Auk þess er rétt að leiðrétta þá rangfærslu að viðburðurinn fari fram í Háskólabíói. Hið rétta er að hann fer fram í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Eins segir að það sé óhætt að fullyrða að enginn annar Íslendingur en Guðni Th. Jóhannesson forseti, hafi vakið eins oft og vel athygli á „atbeina hans [Jóns Baldvins] örlagaárið 1991 þegar íslensk stjórnvöld studdu dyggilega við sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsþjóðanna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins