
Danielle Bregoli, eða Bhad Babie eins og hún er kölluð í dag, var þrettán ára þegar hún öðlaðist frægð á einni nóttu í kjölfar þess að hún kom fram í spjallþætti Dr. Phil ásamt móður sinni. Hún var titluð sem „vandræðaunglingur,“ sögð vera „erfið í skapinu“ og „alltaf til vandræða.“
Í þættinum kom hún með frasann fræga: „Cash me outside, how ‘bout dat?“ og sló í gegn nánast yfir nóttu. Í kjölfarið sankaði hún að sér frægð og frama í gegnum samfélagsmiðla og tónlist.
Sjá einnig: Innlit í villtu veröld Bhad Babie – Byrjaði á frasa hjá Dr. Phil og sló síðan sölumet OnlyFans
Þegar hún varð átján ára stofnaði hún OnlyFans-síðu og græddi eina milljón bandaríkjadollara, eða 126 milljónir króna, á fyrstu sex klukkutímunum og sló þar með öll sölumet OnlyFans.
Síðastliðið ár hefur hún þénað 52 milljónir dollara á síðunni, eða rúmlega 6,7 milljarða króna, og sannar það í nýrri færslu á Instagram.
„Farðu að gráta yfir þessu tík,“ skrifaði hún með skjáskoti af reikningsyfirliti frá OnlyFans.