fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Eyjan

Skiptum lokið hjá Jóni Arnóri og Pavel – Um 47 milljón króna gjaldþrot Kjöt og Fisks ehf.

Eyjan
Þriðjudaginn 15. febrúar 2022 15:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 10. febrúar síðastliðin lauk skiptum í þrotabúi Bombay ehf. en félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 22. september 2021 samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu fyrr í dag. Bombay ehf. var rekstrarfélag verslana Kjöt og Fisks sem körfuboltakapparnir Jón Arnór Stefánsson og Pavel Ermolinskij stofnuðu árið 2014. Fyrst í verslunarhúsnæði við Bergstaðastræti 14 og síðar útibú við Garðatorg í Garðabæ sem var skammlíft.

Verslunin við Bergstaðastræti 14 hætti rekstri þann 11.september 2018. „Þetta var stórt verkefni og búðarreksturinn var bara hluti af því. Hann var orðinn erfiður og við erum að sjálfsögðu að keppa við þessar stærri verslanir,“ sagði Pavel í samtali við Fréttablaðið á sínum tíma. „Okkur tókst samt að mynda þennan skemmtilega hverfisfíling og fólk sem byrjaði sem kúnnar eru vinir okkar í dag. Það er það sem situr eftir.“

Í auglýsingu Lögbirtingablaðsins kemur fram að lýstar kröfur hafi verið kr. 46.735.352 en alls greiddust rúmar 1,5 milljónir króna upp í almennar kröfur yfir kr. 1.000.000 eða 5,3525 hundraðshlutar.

Jón Arnór og Pavel spiluðu báðir körfbolta á fullu meðfram rekstri verslana sinna. Jón Arnór lagði síðan skónna á hilluna eftir síðasta tímabil en Pavel spilar enn með liði Vals í Subway-deildinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

David endar á Ítalíu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær